Jöfnunarsjóður sveitarfélaga.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þessa staðfestingu sem hún var núna að veita okkur um þetta sem ég hélt fram, að ríkisstjórnin sem nú situr hefur blásið til ófriðar gegn sveitarfélögum í landinu. Ég tók það fram í ræðu minni hér í dag og ég á kannski eftir að koma inn á það aftur í seinni ræðu að það er dálítið ólíkindalegt að lesa umsagnir sveitarstjórna víða um land. Það eru hugsanlega tvær til þrjár sem ég las sem töldu þetta gæfuspor. Allar aðrar sögðu að þetta myndi valda erfiðleikum, útgjaldaaukningu o.s.frv., fyrir utan náttúrlega það sem blasti við í alla vega einni ef ekki tveimur umsögnum, að menn telja að með því að fara fram með þessum hætti sé ríkisstjórnin að fara í blóra við 78. gr. stjórnarskrárinnar — það er nú gott að lögspekingur gangi í salinn þegar maður vitnar í stjórnarskrána — og vega að sjálfstæði sveitarfélaga. Mig langar bara til að ánýja það við hv. þingmann hvort hún sé ekki sammála mér í því að með þessu háttalagi sínu sé ríkisstjórnin að vega harkalega að sjálfstæði sveitarfélaga til að höndla sjálf með sína tekjumöguleika og tekjustofna.