156. löggjafarþing — 31. fundur,  28. apr. 2025.

Jöfnunarsjóður sveitarfélaga.

270. mál
[21:44]
Horfa

Hildur Sverrisdóttir (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni hans seinna andsvar. Ég verð að segja að ég tek kannski ekki alveg undir að sveitarfélögin heilt yfir séu einróma í þessu máli, enda er það bara eðlilegt þegar sveitarfélögin eru skiljanlega í mjög mismunandi aðstöðu. Þau munu koma í mismunandi aðstæðum að því borði, fara í mismunandi aðstæðum frá því borði og auðvitað er það hlutverk sveitarfélaga að skoða þetta mál svona í gegnum sín hagsmunagleraugu og það er ekkert að því.

Ég er hins vegar að leggja áherslu á þá sannfæringu mína um það lykilatriði, prinsippatriði, að það sé óásættanlegt hreint út sagt að hér eigi að lögfesta hámarksútsvar sama hvað. Það er punkturinn sem ég geri mjög alvarlegar athugasemdir við. Það er prinsippið sem við verðum að spyrna gegn og verðum að finna betri lausn á. Það að þeir sem skoða þetta mál út frá sínum hagsmunum og sjónarmiðum, það er ekkert nema eðlilegt að hafa mismunandi skoðanir þar. En ég vinn við að horfa á samfélagið og öll mál sem koma hérna með þeim gleraugum sem ég hef mesta trú á að gagnist samfélaginu best. Ég held að það sé vont að lögfesta þetta mál og pína sveitarfélög til að hækka skatta á íbúa sína upp í hámarksútsvarsprósentu. Það er vont. Það er sósíalismi, hann er óþarfi og ég hafna honum.