156. löggjafarþing — 31. fundur,  28. apr. 2025.

Jöfnunarsjóður sveitarfélaga.

270. mál
[21:47]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S):

Virðulegur forseti. Ég vil nú nota tækifærið og þakka hæstv. ráðherra Eyjólfi Ármannssyni fyrir að taka þátt í umræðunni og ég vona að hann sé ekki hættur því. Ég vil líka þakka hæstv. ráðherra fyrir að tala skýrt. Hann tók af allan vafa ef einhver var. Hann sagði skýrt: Halda menn virkilega að við ætlum að niðurgreiða skattalækkanir í einhverjum sveitarfélögum? Niðurgreiða skattalækkanir í sveitarfélögum — á íslensku heitir þetta að þú ert að búa til hvata til þess að skattar séu alltaf í hámarki. Gæti ekki verið skýrara, virðulegi forseti, og það er það sem við erum að gagnrýna hér í þessari umræðu. Ég vil nota tækifærið og þakka hæstv. ráðherra fyrir að koma hingað. Ef það var einhver sem var að horfa á þessa umræðu og var í einhverjum vafa um að þeir sem hér töluðu hefðu rétt fyrir sér þá kom bara hæstv. ráðherra og staðfesti að allt sem hefur verið sagt um þetta frumvarp, það sem hefur verið gagnrýnt, þegar menn eru að segja þetta frumvarp píni alla, öll sveitarfélög, upp í hámarksskatta, útsvarið, þá er það bara rétt. Hæstv. ráðherra er bara ánægður með þetta og segir: Nei, nei, við erum að taka hérna af hvata til að vera með háa fasteignaskatta. Já, jahá, það er áhugavert. Þetta eru ekki góðar fregnir fyrir þá sem leigja húseignir á Íslandi. Leigusalinn, það er allt í lagi þó að hann fái skattalækkun en leigutakinn skal borga hámarksskatta og engar refjar og hann getur ekkert flúið milli sveitarfélaga ef þetta frumvarp fer í gegn.

Virðulegur forseti. Þessi vinstri stjórn er með slíkum eindæmum að það tekur ekki nokkru einasta tali. Var nú ekki með mikið plan þegar á hólminn var komið og ég vona að ég móðgi engan, allra síst aðdáendur liðs í ensku deildinni sem er núna í 14. sætinu, (Gripið fram í.) en það eru bara tveir aðilar sem eru með plan og það eru fyrrverandi framkvæmdastjóri Manchester United og hæstv. forsætisráðherra Kristrún Frostadóttir. En planið er bara eitt, það er að hækka skatta og guð veit hvert hitt planið var. Ég sé nú andlit nokkurra hv. þingmanna sem hræða mig örlítið en það er út af því að þeir eru aðdáendur Manchester United. En í fullri alvöru, virðulegi forseti, það eina sem boðar gott núna hjá hæstv. ríkisstjórn er að hæstv. ráðherra Eyjólfur Ármannsson hefur komið hreint fram og tekið af allan vafa um það að þetta frumvarp hér hefur það markmið að tekjuskattar skuli vera í hámarki. Tekjuskattar skulu vera í hámarki, það er bara skýr vilji hæstv. ráðherra og hæstv. ríkisstjórnar, og þess vegna getum við ekki samþykkt þetta frumvarp.

Svo af því að hæstv. ráðherra talaði um að kerfið væri svo einfalt eftir að þetta yrði samþykkt þá hvet ég alla til að skoða frumvarpið. Ég veit það ekki, ef við förum bara á bls. 11 og skoðum hérna í viðaukanum 3., 4. og 5. gr. þá get ég orðað það þannig að ég hef séð einfaldari frumvörp. En það er alltaf gaman að skoða stærðfræðijöfnur, alltaf gaman, það er bara fátt skemmtilegra. Ég efast ekki um að allir sem fara í gegnum þennan viðauka komist að þeirri niðurstöðu að þetta sé kannski ekki — já, ég held að einfalt sé ekki það fyrsta sem kemur upp í hugann. En það er kannski aukaatriði því að aðalatriðið er að það er í það minnsta þakkarvert að hæstv. ráðherra tali skýrt um það að vilji ríkisstjórnarinnar sé alveg skýr. Það er skýr lína til sveitarfélaga í landinu: Þið skuluð hækka útsvarið eins mikið og mögulegt er. Það er stefna þessarar vinstri stjórnar.