156. löggjafarþing — 31. fundur,  28. apr. 2025.

Jöfnunarsjóður sveitarfélaga.

270. mál
[21:54]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina og svo það sé sagt þá var á þessum tíma þegar ég var í borgarstjórn þegar byrjuð þessi þróun sem síðan hefur farið á þann veg að allir þekkja stöðu Reykjavíkurborgar þegar kemur að fjármálum og ýmsum öðrum málum. Það eru sömu aðilar sem stýra ríkisstjórninni og stýra Reykjavíkurborg. Þetta er undir forystu Samfylkingarinnar. Núna er t.d. Flokkur fólksins kominn í meiri hluta í Reykjavíkurborg.

Það er erfitt að reka sveitarfélag. Þú þarft að taka erfiðar ákvarðanir. Svo ég tali nú bara um afmælisbarn dagsins, bæjarstjórann í Ölfusi, sem er að skila 1,3 milljörðum af 6 milljarða veltu, það gerist ekkert af sjálfu sér. Alveg sama og í Árborg, við erum að sjá viðsnúning þar. Það eru erfiðar ákvarðanir sem þú þarft að taka, þ.e. ef þú ætlar að ná árangri. En sendingin sem vinstri menn vilja fá, þeir sem eru að stýra sveitarfélögunum, þeir vilja fá þessa sendingu, samtalið verður bara svona: Bíddu, af hverju getum við ekki lækkað útsvarið? Við getum það ekki. Veistu hvað það þýðir? Þá lækka framlögin úr jöfnunarsjóði, þetta er ekki bara að lækka tekjurnar okkar heldur líka framlagið úr jöfnunarsjóði. Það sér það hver maður að við þurfum að halda þessu í hámarki. Þetta er ekki okkur að kenna, það var ríkisstjórnin sem gerði þetta.

Þetta eru skilaboðin sem vinstri mennirnir vilja fá. Því að það lítur líka illa út t.d. fyrir Samfylkinguna í Reykjavík sem er búin að stýra borginni mjög lengi og Viðreisn hefur verið þar, ég held að hún sé úti núna, og Flokkur fólksins. Þessi samanburður er ekki góður. Þú verður einhvern veginn að geta forsvarað þetta og þetta er leið til að forsvara það að hækka skatta, hafa þá í algjöru hámarki. En Samfylkingin getur alla vega ekki hækkað skatta, þeir eru búnir að hækka þá upp í topp.