156. löggjafarþing — 31. fundur,  28. apr. 2025.

Jöfnunarsjóður sveitarfélaga.

270. mál
[21:56]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni svarið. Ég held að þarna sé hv. þingmaður mögulega að hitta naglann á höfuðið. Þetta einfaldar allar seinni tíma ákvarðanir vinstri manna landsins um að hafa skatta í lögþvinguðu hámarki. Mér datt það nú bara til hugar undir svari hv. þingmanns að þetta sé svona af sama meiði og þegar það var fest í lög að borgarfulltrúar í Reykjavík skyldu vera 23 í staðinn fyrir að menn hefðu eitthvert val um það með hvaða hætti þeim málum væri háttað. Og við sjáum hvernig hefur gengið rekstrarlega þar síðan það, ég leyfi mér að segja stjórnleysi var innleitt.

Það er mikið talað um sjálfsákvörðunarrétt sveitarfélaga hér í þessum sal. Ég verð að viðurkenna að sjálfsákvörðunarréttur sveitarfélaga hvað ákvörðun útsvarsprósentu varðar, að þessu frumvarpi innleiddu eins og það liggur hér fyrir, er bara í orði en ekki á borði. En það sem mig langar til að velta upp hér, bara í ljósi reynslu hv. þingmanns af sveitarstjórnarmálum og sömuleiðis störfum í ríkisstjórn: Sér hv. þingmaður fleiri svið sjálfsákvörðunarréttar sveitarfélaga verða víkjandi? Ég hef nú árum saman talað um níðstöngina sem er hérna fyrir utan, kölluð svarta perlan, ljótt grjót sem er svona leiðindamerki Reykjavíkurborgar til okkar hingað í þinginu sem hlýtur á endanum að hafa áhrif á skipulagsvald, a.m.k. þessa litla reits hér í kring ef ekki verður gerð bragarbót á. Það eru skipulagsmálin, það eru skattarnir og það er margt annað, mörg svið sem eru undirorpin sjálfsákvörðunarrétti sveitarfélaga og hverfast um hann. En varðandi útsvarsgreiðslur , útsvarsupphæð þá er það bara í orði en ekki á borði eftir að þetta frumvarp nær í gegn, fari svo ólukkulega. En hefði það ekki komið hv. þingmanni á óvart í borgarstjóratíð sinni (Forseti hringir.) hefði Reykjavíkurborg talað fyrir því að sjálfsákvörðunarréttur borgarinnar til (Forseti hringir.) ákvörðunar um útsvar yrði afnumin í raun?