Jöfnunarsjóður sveitarfélaga.
Ég þakka hv. þingmanni aftur fyrir andsvarið. Það var góð upprifjun hjá honum með borgarfulltrúana. Þetta er af nákvæmlega sama meiði en við gátum ekki gert neitt. Auðvitað sér það hver maður að það að hafa 23 er allt of mikið. Alþingi gerði þetta þannig að við þurfum að vera með þetta.
Þessi hræðilegi steinn þarna. Auðvitað á maður alltaf að líta á björtu hliðarnar. Ég meina, þetta hefði getað verið það sama og fólkið lenti í í Breiðholtinu, bara grænt gímald, þannig að við vorum kannski bara heppin. Við hefðum kannski getað vaknað hérna einn daginn og ekkert séð út um gluggann af því að það væri komin kjötvinnsla hérna. Það kannast nú enginn við það hjá Reykjavíkurborg af hverju í ósköpunum þetta gerðist. Það var einhver embættismaður þarna, einhver indælismanneskja sem var eina manneskjan sem fékkst til að svara fyrir þetta og gat eðlilega ekki gert það.
Ég er alltaf á því að heimur fari batnandi en það er hins vegar sumt sem þróast í ranga átt og ég vona að það taki annan snúning. Hv. þingmaður bendir réttilega á það sem snýr í þessu tilfelli að sjálfsákvörðunarrétti, að ákveða það hvaða álögur þú getur lagt á íbúa viðkomandi sveitarfélags. Það var metnaðarmál, í það minnsta margra sveitarstjórnarmanna og svo margra flokka, að vera með álögur í lágmarki. Þess vegna þurftu menn ekki að taka slaginn gagnvart því að það væru sögð falleg orð eða búinn til hvati. En þetta er í rauninni þvingun af hendi löggjafans til þess að hækka skatta. Mér finnst það dapurt ef einhver sveitarstjórnarmaður, sama í hvaða hópi hann er og í hvaða flokki hann er, ætlar ekki að berjast gegn því. Hæstv. ráðherra talaði bara mjög skýrt hérna: Jöfnunarsjóðinn á ekkert, eins og hæstv. ráðherra orðaði það, að fjármagna skattalækkanir sveitarfélaganna. Þetta gat ekki verið skýrara. (Forseti hringir.) Ef þetta er það sem sveitarstjórnir landsins vilja, ef svo er, (Forseti hringir.) þá skulum við aldrei tala um að þau vilji láta virða sjálfsákvörðunarrétt sveitarfélaganna (Forseti hringir.) því að hann er ekki til staðar í þessu mikilvæga máli ef þetta fer í gegn.