156. löggjafarþing — 31. fundur,  28. apr. 2025.

Jöfnunarsjóður sveitarfélaga.

270. mál
[22:23]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S):

Frú forseti. Er hæstv. ráðherra inni í húsi?

(Forseti (EÁs): Ég bara veit það ekki.)

Ég ætlaði nefnilega að nýta tækifærið og koma hér aftur upp í ræðu ef hæstv. ráðherra væri hér af því að hann var nú svo indæll að koma inn í samtalið áðan. Hann var ekki í þingsal þegar ég hélt ræðu mína áðan og var að fara yfir mikilvæg atriði og mér heyrist á andsvörum hans hér við aðra þingmenn að hann hafi eitthvað misskilið þetta. — Takk, hæstv. ráðherra, ánægjulegt að sjá þig hér í þingsal. Takk fyrir að mæta hér og vera við ræðuna mína. (Gripið fram í.)

Hæstv. ráðherra var aðeins að fara yfir söguna. Ég sagði það líka í fyrri ræðu minni að ég held að mörgu leyti að þetta frumvarp sé gott og ég óska hæstv. ráðherra til hamingju með að vera kominn fram með það. Hafandi starfað í sveitarstjórn lengi og setið líka á þingi lengi þá held ég að það sé mjög mikilvægt að breyta lögum um jöfnunarsjóð. Ég held að það sé mjög mikilvægt og ég held að það hafi verið góð vinna unnin í þessum starfshópi og í þessari undirbúningsnefnd. Ég held að það sé mjög mikilvægt að auka gegnsæið og skýrleikann með jöfnunarsjóðnum og ég er ekki frá því að margar af þeim hugmyndum sem hér liggja fyrir séu bara fínar, til þess gerðar. En frumvarpið sem áður hefur komið fram er ekki eins og það frumvarp sem hér er. Mikilvægasta breytingin frá því sem lagt var fram hér 2023–2024 og mælt fyrir af þáverandi hæstv. ráðherra, Sigurði Inga Jóhannssyni, er að þá var 3.–5. mgr. 14. gr. ekki inni. Það er í mínum huga stærsta ágreiningsefnið hérna. Ég viðurkenni það alveg að jöfnunarsjóður er til að jafna og hæstv. ráðherra hefur hér ítrekað að þetta sé jöfnunarsjóður og svona félagslegt jöfnunartæki, en fyrsta setningin í þessu frumvarpi til laga sem við erum að fjalla um hér er að hlutverk Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga sé að jafna mismunandi útgjaldaþörf og skatttekjur sveitarfélaga. Þannig að það er útgjaldaþörfin númer eitt, tvö og þrjú, þ.e. fjöldi barna í leikskóla, fjöldi barna í grunnskóla, fjöldi fatlaðra. Þar verða útgjöldin til og sjóðnum er ætlað að jafna það.

Ég viðurkenni líka, hæstv. ráðherra, að það má horfa til tekjuþáttanna og ég get ekki annað en skilið þetta frumvarp þannig — til að mynda 6. gr. um almenn jöfnunarframlög. Þar segir að markmið jöfnunarframlaga sé að jafna mismunandi útgjaldaþörf og skatttekjur sveitarfélaga. Það er verið að vísa í fullnýtingu álagningarhlutfalls útsvars ítrekað, bæði í 6., 7. og 8. gr. frumvarpsins, sem þýðir að það er verið að setja þetta inn í reikniregluna, það er verið að horfa til þess. Þannig að þegar hæstv. ráðherra kemur hér upp og segir: Við ætlum ekki að niðurgreiða úr jöfnunarsjóði skattalækkanir sveitarfélaga, þá hlýtur það að vera einhver svakalegur misskilningur því að frumvarpið sem hæstv. ráðherra er að mæla fyrir á að jafna útgjaldaþörfina og það er verið að taka tillit til álagningarhlutfalls útsvars í frumvarpinu. En það sem ég get engan veginn sætt mig við, og að mér heyrist flestir sem hafa mælt á móti þessu frumvarpi eins og það liggur fyrir, er 3. mgr. 14. gr. Að segja í ofanálag við að tekið sé tillit þess inni í reiknilíkaninu að ef sveitarfélag, og ég leyfi mér að nota orðfæri sem var notað af stjórnarliðum fyrr í dag, leyfir sér að innheimta ekki fullt útsvar þá eigi að skerða það enn frekar. Í mínum huga er þessi orðræða vanvirðing við kjörna fulltrúa í sveitarfélaginu.

Ég held, virðulegur forseti og hæstv. ráðherra, að við getum vel náð fram þeim markmiðum sem skrifuð eru í þetta frumvarp án þess að vera með þessa grein þarna inni og þess vegna hef ég lagt fram breytingartillögu um að taka hana einfaldlega út. Með því er frumvarpið í samræmi við það sem lagt var fram hér 2023–2024 og með því held ég, ég ætla ekki að fullyrða það en ég held að við gætum mögulega náð sátt um að breyta reglum um jöfnunarsjóðinn sem er löngu, löngu tímabært. En þetta grunnprinsipp, virðulegur forseti, að löggjafinn ætli að senda þau skilaboð út til sveitarfélaganna að það verði bara króna á móti krónu skerðing hér ef þau leyfa sér að taka ekki jafn mikið og mögulega meira samkvæmt lögum af sínum íbúum, það er einfaldlega aðferðafræði sem ég get ekki skrifað upp á.