156. löggjafarþing — 31. fundur,  28. apr. 2025.

Jöfnunarsjóður sveitarfélaga.

270. mál
[22:28]
Horfa

innviðaráðherra (Eyjólfur Ármannsson) (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir ræðu sína og mjög gott að heyra að hv. þingmaður sé ánægð með frumvarpið, (BHar: Margt af því. )margt af því sem þar kemur fram og sé löngu tímabært og í samræmi við sveitarstjórnarstigið í dag og líka að hún hafi einangrað ágreiningsmálið við 3. mgr. 14. gr. frumvarpsins þar sem segir, með leyfi forseta:

„Ef sveitarfélag fullnýtir ekki heimild sína til álagningar útsvars skal lækka framlög Jöfnunarsjóðs árið eftir til viðkomandi sveitarfélags, svo sem getið er um í 4. mgr. […]“

Málið er þetta: Starfshópurinn sem upprunalega vann að tillögunni lagði til að nýti sveitarfélag ekki útsvarshlutfall sitt að fullu komi til skerðingar á framlögum jöfnunarsjóðs sem nemi vannýttum útsvarstekjum. Ég vil ítreka að jöfnunarsjóðurinn gegnir félagslegu jöfnunarhlutverki til að stuðla að því að sveitarfélögin geti sinnt lögbundnum skyldum sínum við íbúa óháð tekjuöflunarmöguleika og útgjaldaþörf. Þá þótti starfshópnum eðlilegt að þetta yrði gert. Ég get tekið fram að við kynningu á frumvarpinu voru sveitarfélögin sérstaklega hvött til að taka afstöðu til þessarar tillögu. Það voru einungis fjögur sveitarfélög sem lýstu sérstakri andstöðu við ákvæðið. Önnur annaðhvort tóku undir tillöguna eða lýstu ekki afstöðu sinni. Ég er sammála mati starfshópsins og að því er virðist meiri hluta sveitarfélaga um að þetta sé sanngirnismál. Þessi fjögur sveitarfélög eru vissulega öll, ef ég man rétt, í kjördæmi hv. þingmanns.

Ég treysti á hina þinglegu meðferð í þessu máli og ég tel mjög mikilvægt að þetta mál komist sem fyrst til nefndar og þetta verði að sjálfsögðu rætt í nefndinni. En það breytir því ekki að þetta er mikilvægur hluti af frumvarpinu og við óskuðum sérstaklega eftir því að það yrði tekin afstaða til þessa ákvæðis í umsagnarferli og það voru (Forseti hringir.) fjögur sveitarfélög sem gerðu það og ég tel mikilvægt að hv. þingmaður líti til þess.