156. löggjafarþing — 31. fundur,  28. apr. 2025.

Jöfnunarsjóður sveitarfélaga.

270. mál
[22:30]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra andsvarið en ég minni enn þá á, vegna þeirrar ræðu sem hæstv. ráðherra fer með um hlutverk jöfnunarsjóðs, að það stendur í frumvarpinu sem hæstv. ráðherra er að leggja fram að hlutverk jöfnunarsjóðs er að jafna mismunandi útgjaldaþörf og skatttekjur sveitarfélaga, útgjaldaþörf. Við vitum alveg, virðulegur forseti, hvernig umræðan um jöfnunarsjóð hefur verið. Sveitarfélög hafa yfirleitt bara sett inn spurninguna: Hvernig komum við út úr þessum breytingum? Það hefur svolítið stýrt umræðunni um það hvort fólk styðji það eða ekki. Ég spurði hæstv. ráðherra í andsvari fyrr í dag hver væru pólitísku skilaboðin með þessu. Hæstv. ráðherra vildi halda því fram að þau væru ekki pólitísk, þetta væri eitthvert sanngirnismál. Ég get ekki betur skilið þessi frumvarpsdrög en svo að það sé í rauninni verið að taka tillit til útsvarsins og tekjumöguleika sveitarfélaganna í reiknimódelinu sem slíku. Í ofanálag er verið að leggja til að refsa sérstaklega þeim sveitarfélögum sem, eins og frumvarpið segir, fullnýta ekki sínar skattheimildir, sem er reyndar orðræða sem ég er bara algerlega ósammála.

Það er líka ljóst að hæstv. ráðherra telur þetta mikilvægan hluta af frumvarpinu, sem ég er bara ósammála. Það er búið að leggja sambærilegt frumvarp hérna fram áður, ekki með þessum greinum, og það getur fyllilega náð fram markmiðinu um aukið gegnsæi og sanngirni í jöfnunarsjóði. Hæstv. ráðherra talar um að það séu eingöngu fjögur sveitarfélög sem lýsi andstöðu og bendir svo á að þau séu í mínu kjördæmi, Suðvesturkjördæmi, reyndar mjög vel rekin og flott sveitarfélög (Gripið fram í.) þar sem svo heppilega vill til að kjósendur hafa kosið Sjálfstæðisflokkinn til að stýra trekk í trekk og það hefur bara gengið býsna vel, annað en í nágrannasveitarfélaginu Reykjavík sem hér á að fá töluvert meiri framlag og meira að segja sérstakt höfuðborgarálag.

Virðulegur forseti. Ég náði ekki hvort það var bein spurning hjá hæstv. ráðherra en þingleg meðferð, já takk. Ég vona (Forseti hringir.) að hv. umhverfis- og samgöngunefnd taki þessa breytingartillögu mína til alvarlegrar umfjöllunar og ég vonast til að sjá hana sem tillögu hér þegar þetta mál kemur aftur fram í þingsal.