fjáraukalög 2025.
Forseti. Það frumvarp til fjáraukalaga sem ég mæli hér fyrir er lagt fram til að sækja nauðsynlegar heimildir fyrir ríkissjóð til útgáfu ríkisskuldabréfa fyrir allt að 510 milljarða. Útgáfa bréfanna gerir ÍL-sjóði kleift að gera upp skuldir sínar sem einföld ríkisábyrgð hvílir á og skapa að uppgjöri loknu skilyrði til að hægt sé að slíta sjóðnum. Með samþykki frumvarpsins er hægt að ljúka langri og erfiðri vegferð. Segja má að frumvarpið snúist um að Alþingi veiti ríkissjóði heimild til að fullnusta samkomulag við kröfuhafa sem var samþykkt á fundi þann 10. apríl síðastliðinn. Frumvarpið er því nokkurs konar endapunktur flókinna viðræðna milli kröfuhafa og ríkisins.
Forseti. Öll vitum við að rekstur Íbúðalánasjóðs og síðar ÍL-sjóðs hefur verið ósjálfbær um langt skeið. Eiginlegri lánastarfsemi sjóðsins var hætt fyrir meira en áratug. Þrátt fyrir það hefur rekstur hans sem sjálfstæðrar einingar verið með viðvarandi halla og samsvarandi tjóni fyrir ríkissjóð vegna ábyrgðar hans.
Forseti. Í áformaskjali um lagasetningu sem birt var í samráðsgátt stjórnvalda í mars 2023 segir að greiðsluþrot ÍL-sjóðs verði eigi síðar en árið 2034 og eigi síðar en þá muni reyna á einfalda ábyrgð ríkisins. Veruleg óvissa sé um hvernig standa skuli að uppgjörinu. Verði ekkert að gert muni fjárhæð einföldu ábyrgðarinnar vaxa ár frá ári vegna fyrirsjáanlegs tapreksturs sjóðsins. Um mat á valkostum sagði þar að ef vel tækist til í viðræðum við kröfuhafa gæti vel útfærð lausn skilað kröfuhöfum jafn góðri ávöxtun eða betri ásamt því að afstýra mikilli óvissu um afleiðingar af gjaldþroti sjóðsins. Einnig var bent á að það væri allra hagur að skipulegt uppgjör sjóðsins færi fram sem fyrst og þar með væri mat stjórnvalda að slíkt uppgjör tryggði best heildarhagsmuni almennings. Þetta mat er í raun óbreytt og sú niðurstaða sem er grundvöllur þessa frumvarps verður að teljast betri en aðrar leiðir sem í boði eru þegar á allar hliðar málsins er litið.
Forseti. Uppgjör HFF-skuldabréfa er í samræmi við tillögu sem lögð var fram af hálfu viðræðunefndar fjármála- og efnahagsráðherra og ráðgjafa 18 lífeyrissjóða þann 10. mars 2025. Tillagan er afrakstur rúmlega eins árs viðræðna og var ákveðið að leggja hana fyrir eigendur bréfanna á fundi kröfuhafa sjóðsins þann 10. apríl 2025. Eftir að yfir 80% kröfuhafa samþykktu tillöguna að uppgjöri er ríkissjóði heimilt, samþykki Alþingi þetta frumvarp, að gera bréfin upp með afhendingu eigna sem eru að mestu ríkisskuldabréf, önnur markaðsverðbréf í eigu ÍL-sjóðs, gjaldeyrir í evrum og íslenskar krónur.
Forseti. Rétt er að árétta að um er að ræða endurfjármögnun á skuldum ÍL-sjóðs sem taldar eru með í skuldum samstæðu A-hluta ríkissjóðs samkvæmt flokkun þeirra hjá Hagstofunni. Það hlutfall mun lækka um a.m.k. 5% af vergri landsframleiðslu að uppgjöri loknu. Ríkisábyrgðir eins og þær eru skráðar hjá Ríkisábyrgðasjóði munu jafnframt lækka um 88% miðað við stöðu í árslok 2024.
Forseti. Um verulega uppstokkun er að ræða á efnahag samstæðu A-hluta ríkissjóðs þar sem talsverðar eignir sem áður voru á bókum ÍL-sjóðs færast til ríkissjóðs, auk þess sem ríkissjóður leggur tilteknar eignir til uppgjörsins til viðbótar við ný ríkisskuldabréf. Uppgjörið mun því jafnframt fela í sér önnur fjárhagsleg áhrif á samstæðu A-hluta.
Forseti. Gert er ráð fyrir að áhrif á afkomu A1-hluta verði neikvæð. Á árinu 2025 er áætlað að vaxtagjöld muni hækka um 15–30 milljarða en vaxtatekjur hækka á móti um 10–15 milljarða. Enn ríkir óvissa um þessar stærðir þar sem ekki liggur nákvæmlega fyrir hvenær endanlegt uppgjör getur átt sér stað. Þegar það liggur fyrir munu fjárhagsleg áhrif á A1-hluta skýrast og verður gerð grein fyrir þeim í frumvarpi til fjáraukalaga í október þar sem viðeigandi heimildir, m.a. til greiðslu vaxtagjalda, verða lagðar fyrir Alþingi.
Forseti. Heildaráhrifin á fjárhag samstæðu A-hluta verða hins vegar jákvæð sem endurspeglar hagkvæmni samkomulagsins í samanburði við að reka sjóðinn áfram út líftíma skulda sem jafnframt fæli í sér ákvörðun stjórnvalda um að leggja sjóðnum til þá fjármuni sem nauðsynlegir eru til að hann geti greitt af öllum skuldum sínum. Þá er gert ráð fyrir jákvæðu greiðsluflæði til ríkissjóðs á næstu árum sem ætti að létta á lánsfjárjöfnuði eins og hann birtist í áætlunum ríkissjóðs og forsendum fjármálaáætlunar.
Forseti. Heimild til uppgjörs gagnvart kröfuhöfum er virk til 14. júní 2025 en fellur þá úr gildi. Ætli ríkissjóður að nýta heimild til uppgjörs þarf að tilkynna kröfuhöfum með sjö daga fyrirvara. Með samþykki frumvarpsins verður þeirri óvissu eytt sem annars ríkir um uppgjör ÍL-sjóðs þegar eignir sjóðsins klárast. Að ljúka uppgjöri ÍL-sjóðs með samkomulagi felur í sér jákvæð tíðindi fyrir ríkissjóð, almenning og kröfuhafa sjóðsins.
Forseti. Um leið og ég legg til að frumvarpinu verði vísað til hv. fjárlaganefndar leyfi ég mér að óska eftir því við nefndina og þingheim allan að málið fái hraða meðferð til að unnt verði að standa við setta tímafresti og hefja langþráð lokauppgjör þessa máls.