156. löggjafarþing — 31. fundur,  28. apr. 2025.

fjáraukalög 2025.

319. mál
[22:41]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir framlagningu þessa máls og það er mjög ánægjulegt að við séum alla vega komin í þennan kafla í þessari sorgarsögu. Ég geri ekki athugasemdir við það að þetta mál sé fram komið og svo er auðvitað mikilvægt að fara yfir það því þetta er flókið mál eins og kemur fram þegar maður les frumvarpið. Þá skiptir máli að við förum yfir það og fáum sömuleiðis umsagnir þannig að það verði nú ekki fleiri mistök gerð í ferlinu, ég veit að það er ekki ætlun hæstv. ráðherra eða hæstv. ríkisstjórnar. En ég verð að viðurkenna, virðulegi forseti, að jafn ánægður og maður er að sjá að við séum komin á þennan stað þá fannst mér nú frekar lágt lagst þegar fyrirsagnirnar voru þær að leið Bjarna var hafnað og hér voru menn að slá sér upp á því að hér kæmi ný ríkisstjórn og loksins kæmi einhver sem gerði eitthvað af viti. Ég ætla ekkert að vera með nein stóryrði en við værum ekki komin á þennan stað og mér fyndist fara betur á því — það var enginn hagur af því hjá kröfuhöfum að setjast niður og semja við ríkið, þeir ætluðu ekkert að gera það. Við erum komin á þennan stað sem var sá staður sem fyrrverandi hæstv. fjármálaráðherra, Bjarni Benediktsson, vildi að yrði farið á. Það þurfti að gera ákveðna hluti til þess að fá aðila til þess að setjast við samningaborðið. Auðvitað verður hver og einn að hafa hlutina með sínu lagi en mér fyndist allt í lagi að þeim ráðherra yrði nú hrósað sem hóf þessa vegferð.