156. löggjafarþing — 31. fundur,  28. apr. 2025.

fjáraukalög 2025.

319. mál
[22:47]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Daði Már Kristófersson) (V) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil þakka hv. þm. Bergþóri Ólasyni fyrir hans ágætu spurningu. Það er rétt að þær eignir sem ég nefndi hér í inngangi, sem eru tveir flokkar ríkisskuldabréfa annars vegar og síðan gjaldeyrir og peningar, eru lausnir sem fyrst og fremst eru hugsaðar fyrir stærri kröfuhafa. Auðvitað geta menn alltaf deilt um fjármagnsgjörninga, forsendur, vaxtaútreikningaforsendur inn í framtíðina, en það á að vera þannig að allir kröfuhafar sitji við sama borð. Það getur hins vegar ekki verið þannig einfaldlega af hreinum praktískum ástæðum að það sé hægt að smætta lausnirnar, þessa samsetningu, niður í hið óendanlega. Það verða að vera þarna einhver praktísk neðri mörk. Enginn kröfuhafi á að fara verr settur frá borðinu þótt honum bjóðist ekki aðgangur að öllum eignaflokkum.