156. löggjafarþing — 31. fundur,  28. apr. 2025.

fjáraukalög 2025.

319. mál
[22:50]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Daði Már Kristófersson) (V) (andsvar):

Forseti. Ég þakka hv. þm. Bergþóri Ólasyni fyrir hans ágætu spurningu. Tilfellið er að samningar eins og þessir eru alltaf einhvers konar málamiðlanir. HFF-bréfin, það hefur auðvitað ríkt um þau nokkur óvissa og möguleiki t.d. til þess að selja þessi bréf á markaði hefur verið mjög takmarkaður um langt skeið. Það er afleiðing af þeirri forsögu sem þetta mál á og ég hygg að margir þingmenn kannist við þannig að það er óumflýjanlega þannig að niðurstaðan er einhvers konar skipti á vaxtaábata og seljanleika sem ég vil þó minna á að kröfuhafar hafa sjálfir samþykkt.