fjáraukalög 2025.
Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir framsögu á ágætu máli. Ég þakka honum ekki síður ærlegt svar hans við fyrirspurn hv. þm. Guðlaugs Þórs Þórðarsonar um að því sé haldið til haga að það var fyrrverandi fjármálaráðherra Sjálfstæðisflokksins, Bjarni Benediktsson, sem hóf þessa vegferð, mjög flóknu vegferð. Mikilvægi hennar og þessa máls er tíundað í greinargerð málsins sem hér er undir og það er auðvitað mjög gott að samningar hafi náðst. Það er mikil búbót og gott fyrir ríki og þjóð að hafa þessa óvissu ekki lengur hangandi yfir sér og ég fæ að þakka hæstv. ráðherra aftur fyrir að vera heiðarlegur og ærlegur með forsögu þessa flókna máls.
En talandi um forsöguna þá held ég að það verði líka að fá að nefna, frú forseti, að við verðum að muna hvernig þessi vandi varð til. Það skiptir sérstaklega miklu máli í þessum sal hér. Nú tel ég að það sé aldeilis tækifæri til þess að læra af sögunni sem hefur til að mynda sýnt að samfélagsbankar og ríkisíhlutanir séu ekki leiðin fram á við. Ríkið veit ekki best. Ríkið veit ekki hvað einstaklingum er fyrir bestu. Ein lexía þessa lögmáls er þess valdandi að við stöndum hér í dag.
Ég vil því fá að spyrja hæstv. fjármálaráðherra: Í ljósi allrar forsögu þessa máls getur hæstv. ráðherra tekið undir með mér hér í þessari pontu og sagt: Aldrei aftur samfélagsbanki?