156. löggjafarþing — 31. fundur,  28. apr. 2025.

fjáraukalög 2025.

319. mál
[22:53]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Daði Már Kristófersson) (V) (andsvar):

Forseti. Ég þakka hv. þm. Hildi Sverrisdóttur fyrir hennar spurningu. Spurningum um samfélagsbanka hefur að vísu áður verið verið lyft í þessum sal og nú skal ég fyrstur manna viðurkenna að vera enginn sérstakur sérfræðingur í bankastarfsemi en kannast alls ekki við að hugtakið samfélagsbanki hafi skýra skilgreiningu. Ég skal þó leyfa mér að taka að því leyti undir fullyrðingu hv. þingmanns að það er með öllu ólíðandi og verður að varast í lengstu lög að ríkið taki áhættu af viðskiptum þriðja aðila. Við þessu var vandlega varað og ítrekað í fjölmörgum umsögnum, m.a. Seðlabankans, en einnig markaðsaðila á sínum tíma. Þetta vandamál var fyrirsjáanlegt. Það hlaut raunar að koma upp. Ég tek að því leyti undir orð hv. þingmanns og leyfi mér þá að endurskilgreina, að slík áhættutaka ríkisins af viðskiptum þriðja aðila er ekki til eftirbreytni.