fjáraukalög 2025.
Frú forseti. Við ræðum hér mál sem hefur kannski að einhverju marki verið beðið eftir árum saman og vandamál sem er til komið í tengslum við rekstur og ákvarðanir Íbúðalánasjóðs sem eiga sögu sína að rekja til ársins 2004, eins og ágætlega er komið inn á í greinargerð frumvarpsins þar sem farið er í gegnum breytingar á fjármögnun Íbúðalánasjóðs árið 2004 og þróun í kjölfarið. Það eru auðvitað ákvarðanir sem voru teknar síðar sem eru, hvað skal segja, hin eiginlega ástæða tjónsins sem varð en það kannski undirstrikar hversu gjarnir við stjórnmálamennirnir erum á að taka ákvarðanir sem eru að einhverju marki þægilegar þá stundina í stað þess að bíta úr nálinni með það sem í rauninni var grundvallað með upphaflegu ákvörðuninni sem verður í kjölfar kosninganna 2004 og áherslna sem þá voru lagðar. Það hefur legið fyrir síðan fljótlega upp úr bankahruni að umtalsvert tjón yrði af uppgjörum HFF-bréfanna, og einhver RB-bréf eru nú þarna líka, ég man þá tölu ekki í heildina en meginþunginn er í HFF-34 og HFF-35 sem eru skuldabréfaflokkar sem voru notaðir til að fjármagna Íbúðalánasjóð og starfsemi sjóðsins á sínum tíma.
Ég vil kannski koma örsnöggt inn á smá útúrdúr í ljósi þess að hv. þm. Hildur Sverrisdóttir kom inn á í andsvari við hæstv. fjármálaráðherra mikilvægi þess að við hugsum áhrif þessarar hugmyndar sem oft er rædd er varðar samfélagsbanka. Bankarekstur er áhætturekstur. Við kynntumst því svo rækilega sem þjóð 2008 hvaða áhrif vandræði í þeim geira geta haft. Við kynnumst því nú og það hafa blasað við okkur núna í rúman áratug afleiðingar ákvarðana sem voru kannski ekki alveg hugsaðar til enda sem nú enda á herðum skattgreiðenda. Bara í þessu samhengi held ég að við þurfum að gæta okkar að ræða mál og hugmyndir er varða samfélagsbanka ekki af léttúð. Þetta verkefni sem við stöndum hér frammi fyrir er auðvitað uppgjör á umfangsmesta samfélagsbankanum sem við höfðum á því formi, ef svo má segja, þó að ég taki undir með hæstv. fjármálaráðherra að hugtakið samfélagsbanki er ekki skilgreint með mjög nákvæmum hætti. En þá held ég að sé hægt að segja að þegar við sjáum hann þá þekkjum við hann og Íbúðalánasjóður eins og hann þróaðist og það verkefni sem nú blasir við okkur er afrakstur slíks. Ég vil bara slá þennan varnagla gagnvart síðari tíma umræðu að við eigum að fara varlega í umræðu sem þessari hvað hugmyndir um samfélagsbanka varðar því að reynslan er sú að bankarekstur er áhætturekstur, mikill áhætturekstur þar sem stórtjón geta orðið á grundvelli ákvarðana sem ekki virtust svo stórar þegar þær voru teknar.
Þetta kemur auðvitað upp í umræðu á síðasta kjörtímabili þegar þáverandi hæstv. fjármálaráðherra talar fyrir því að slíta sjóðnum. Viðbrögð lífeyrissjóða voru auðvitað, svo vægt sé til orða tekið, mjög harkaleg og leikmönnum svona heldur erfitt að kafa djúpt ofan í það sem undir lá. En mér þótti alltaf kostur þegar var reynt að nálgast umræðuna út frá prinsippum. Þess vegna spurði ég hæstv. fjármálaráðherra hér áðan hver munurinn væri á, hvort kröfuhafar hefðu í raun gefið eitthvað eftir af sínum kröfum. Það var uppleggið þegar þáverandi fjármálaráðherra, Bjarni Benediktsson, fer af stað í þessa vegferð. Það hlýtur að vera skylda fjármálaráðherra og ríkisstjórnar hverju sinni að lágmarka það tjón sem ríkissjóður kann að verða fyrir á grundvelli, eins og í þessu tilviki, einfaldrar ábyrgðar á skuldbindingum Íbúðalánasjóðs.
Það má vera að svolítil ónotatilfinning hafi læðst að mér þegar ferföld húrrahróp bárust frá samninganefndum lífeyrissjóðanna og vil ég þó halda því til haga að þetta eru einar mikilvægustu, köllum þær stofnanir íslensks samfélags sem skipta gríðarlega miklu máli gagnvart hagsæld og velferð íslensks samfélags og íslenskra borgara en í uppgjöri sem þessu, sem er, eins og hér kemur fram, rammað inn með þessari 510 milljarða skuldabréfaútgáfu til að endurfjármagna skuldir ríkissjóðs við ÍL-sjóð þá skiptir hver komma miklu máli. Maður verður bara að gefa sér að samninganefndirnar hafi reynt að leiða þetta í jörðu með þeim hætti að hag skattborgara og ríkissjóðs væri sem best borgið því svo sannarlega gerði her lífeyrissjóðanna það fyrir sína umbjóðendur, eðlilega. Það er bara beinlínis lögskylda þeirra að gera það. En það breytir því ekki að í samningaviðræðum sem þessum blasir við að pappírarnir sem lífeyrissjóðirnir að meginhluta til héldu á í tengslum við HFF-bréfin höfðu minni seljanleika en margur annar pappír og þar fram eftir götunum en var sennilega, út frá ávöxtunarkröfu verðtryggðs bréfs til þetta langs tíma, einhver besti pappír sem hægt hefur verið að kaupa á þeim tímapunkti miðað við þá ávöxtun sem pappírarnir hafa veitt eigendum sínum alla tíð síðan.
Þessar sviðsmyndir eru alveg örugglega til þó að þær birtist okkur ekki hér í greinargerð frumvarpsins, a.m.k. ekki þannig að mjög gegnsætt sé, en ég held að hv. fjárlaganefnd ætti að kalla eftir sviðsmyndum, greiningum á því hver í rauninni eftirgjöf, ef við köllum það það, samningsstaða — hvernig hver og einn þáttur var metinn, hvernig uppgjör vaxta var með tilliti til seljanleika og eftirgjafar hvors aðila fyrir sig í hverjum þætti, hvernig þetta var leitt út, því þetta eru þannig upphæðir — og nú bara gefum við okkur að þetta sé allt eins gott og nokkur kostur er á hvað hagsmunir ríkissjóðs varðar — að það skiptir máli að við þingmenn getum haft fótfestu í því samtali af því þetta hallar í tvo nýja Landspítala, þó að kostnaðaráætlun þar eigi ábyggilega eftir að hækka einu sinni enn en látum það nú liggja milli hluta. Ætli þetta sé ekki innviðaskuldin, svona meira og minna, á vegakerfinu og þar fram eftir götunum. Þetta eru gríðarlegar upphæðir sem hér um ræðir þannig að ég hvet hv. fjárlaganefnd til að kalla þetta fram [Tilkynningarhljóð frá farsíma.] þannig að í nefndaráliti meiri hluta þegar þar að kemur þá — ég vona að sími hæstv. ráðherra sé ekki að springa hérna í salnum.
Þetta er þannig ákvörðun að ég get sagt fyrir mig að mér líður svolítið illa með hvað þetta var allt í einu svona þægilegt undir lokin í ljósi þess hversu flókið málið raunverulega er og hversu hart var tekist á í byrjun og þess hversu harkalega nálgun fyrrverandi fjármálaráðherra, Bjarna Benediktssonar, var gagnrýnd af bæði lífeyrissjóðum og ráðgjöfum þeirra á sínum tíma og síðan í raun — þó að það hafi komið fram að sú tilvitnun sé ekki frá fjármálaráðherra komin, ég hélt raunar að svo væri þar sem talað var á þeim nótum að nálgun Bjarna Benediktssonar hefði verið hafnað en það er bara mjög gott og ágætt að það liggi fyrir að svo sé ekki. En það breytir því ekki að það kom smá Icesave-tilfinning yfir mig þegar ég var að lesa fréttir af því að allir hefðu fallist í faðma í þessu risastóra máli, að það hefði verið svona á endanum að einhverju marki þægilegra að klára það heldur en að taka eina samningalotu í viðbót. Það er það sem ég held að við þurfum að fá frá fjárlaganefnd, að svo hafi ekki verið, að þetta sé skynsamleg — það er ekki hægt að tala um frábæra lausn í svona snúnu og að mörgu leyti ömurlegu máli, en bara að hérna sé lausn sem við þingmenn getum allir fylkt okkur á bak við, að það sé góð lausn sem leiði út þau áhrif sem hæstv. fjármálaráðherra taldi upp í ræðu sinni.
Eins og ég segi, við hér í þessum sal eigum ekkert að skammast okkar fyrir það að gera kröfu til þess að fjármálaráðherra og ráðgjafar hans í þessari vinnu gangi þannig fram að fremst sé vörn fyrir ríkissjóð. Það er bara beinlínis hlutverk hæstv. ráðherra og hans starfsmanna. Svo eru bara ráðgjafar lífeyrissjóðanna og þeir sem þeir stýra hafa sín hlutverk sömuleiðis þarna. Um svona hluti takast menn á í samningaviðræðum og lífeyrissjóðirnir og fulltrúar þeirrar væru ekki við þetta samningaborð ef þeir vildu ekki umbreyta þessum eignum sínum sem lágu að þessu leyti í þessum HFF-bréfum með uppgjörsár 2034 og 2044, plús hin sem voru þarna minni flokkar. Ég held að þetta sé okkur mikilvægt en þetta er ég ekki að segja til að tefja málið í vinnslu fjárlaganefndar heldur kannski að hvetja til þess að menn gangi beint til þessa verks að ramma inn þessi gögn þannig að við getum haft gagn af við greiningu málsins og ákvörðun í tengslum við það. Ég læt þetta duga hér í fyrri ræðu minni og óska hv. fjárlaganefnd góðs gengis í meðhöndlun málsins.