156. löggjafarþing — 31. fundur,  28. apr. 2025.

fjáraukalög 2025.

319. mál
[23:08]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Daði Már Kristófersson) (V) (andsvar):

Forseti. Ég þakka hv. þm. Bergþóri Ólasyni fyrir hans ræðu sem er góðra gjalda verð. Þar veltir hann fyrir sér þeirri eilífu spurningu hvort eins langt hafi verið gengið í þessum samningum og kostur var. Þetta er eðlileg spurning og spurning sem er mjög mikilvægt að fjárlaganefnd velti vandlega fyrir sér.

Það mun koma fram í meðförum nefndarinnar að samningsrýmið var til þess að gera vítt í upphafi en þrengdist þegar leið á ferlið. Það komu upp þær aðstæður, eftir að bæði verðbólga hækkaði og stýrivextir Seðlabankans hækkuðu, að munurinn á ávöxtunarkröfu þessara bréfa og ávöxtunarkröfu á markaði dróst verulega saman. Það gerði það að verkum að möguleiki til að ná samningum batnaði. Það er eðlileg afleiðing þannig að sambærilegur samningur hefði verið miklum mun dýrari hefði hann verið gerður fyrr. Þetta er að einhverju leyti tilviljun. Þeir valkostir sem voru í stöðunni voru áframhaldandi rekstur sjóðsins með tapi, það lá nokkurn veginn fyrir hvað það myndi kosta enda eru bréfin verðtryggð. Annar valkostur var slit sjóðsins þá með mati á því hvaða kostnaður myndi fylgja því og síðan hugsanlegir samningar. Eins og staðan hefur verið núna undanfarið hálft ár, kannski ár, þá var valkostur samninga langsamlega besti kosturinn og ósambærilegur við hina kostina. Og eins og ég vék að áðan, þegar ég var spurður út í sambærilegt atriði, (Forseti hringir.) var mögulegt að ná betri niðurstöðu fyrir ríkissjóð en hefði verið hægt nokkurn tímann áður.