fjáraukalög 2025.
Frú forseti. Ég þakka hæstv. fjármálaráðherra fyrir andsvarið. Í inngangi greinargerðar segir, með leyfi forseta:
„Til uppgjörsins verða gefnir út 9 flokkar ríkisskuldabréfa, en þar af eru 8 verðtryggðir flokkar sem bera 3,5% vexti og einn óverðtryggður flokkur sem ber fasta 7,0% vexti.“
Mig minnir að vaxtaálag hafi verið 4,15 vegið, eitthvað svoleiðis, í námunda við það. Ég er ekki alveg með þá tölu, en örlítið hærra en á þessum nýju bréfum. En í ljósi þess að þessi gluggi opnaðist, ef svo má segja, og niðurstaða þess, tækifærið sem sá gluggi skapaði, er útgáfa ríkisskuldabréfa upp á 510 milljarða höfuðstól til að endurfjármagna skuldir ríkissjóðs ÍL-sjóð, þekkir hæstv. ráðherra hver þessi tala hefði verið að gefnum sömu forsendum fyrir 12 eða 18 mánuðum síðan, svona fyrir okkur þingmenn að átta okkur á hversu mikil tækifæri fólust í þessari vaxtaþróun og verðbólguþróun á markaði og þar fram eftir götunum? Ég skil hæstv. ráðherra þannig að þetta séu alvörutölur sem þarna munaði. En liggur fyrir í grófum dráttum hverjar þær hefðu verið miðað við, eins og ég segi, niðurstöðuna eins og hún liggur fyrir og stöðu vaxta og verðbólgu og annarra þátta sem hafa áhrif á þetta fyrir 12 eða 18 mánuðum síðan?