156. löggjafarþing — 31. fundur,  28. apr. 2025.

fjáraukalög 2025.

319. mál
[23:12]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Daði Már Kristófersson) (V) (andsvar):

Forseti. Ég þakka hv. þm. Bergþóri Ólasyni fyrir hans góðu spurningu. Ég þyki nú þokkalega talnaglöggur maður en að ég muni þessar runur er því miður ekki tilfellið. Þær liggja hins vegar allar fyrir og verða fjárlaganefnd aðgengilegar í hennar vinnu. Ég biðst afsökunar á því að svarið sé ekki merkilegra en þetta.

En ég ætla að koma að öðru sem kom fram í ræðu hv. þingmanns og það eru upphæðirnar sem um ræðir. Ég held að það sé mjög mikilvægt að halda því til haga að ÍL-sjóður er ekki eignalaus þótt hann sé ekki gjaldhæfur. Það eru inni annars vegar afgangur af íbúðalánum, mappa upp á rúmlega 200 milljarða, og hins vegar lán ríkissjóðs sem tekin voru úr lausafjárstöðu Íbúðalánasjóðs, eða ÍL-sjóðs, á árinu 2020 til að fjármagna Covid- aðgerðir, sem er þá raunverulega skuldabréf á ríkissjóð sem ríkissjóður eignast með útgáfu bréfa. Nettókostnaðurinn af uppgjörinu við sjóðinn er því allt önnur tala en heildarútgáfa skuldabréfanna, þannig að þingmenn séu með það á hreinu.