156. löggjafarþing — 31. fundur,  28. apr. 2025.

fjáraukalög 2025.

319. mál
[23:14]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hæstv. fjármálaráðherra fyrir þessa stoðsendingu. Ég gleymdi að nefna þetta atriði í ræðu minni sem ég hafði ætlað að gera varðandi þetta lán sem var tekið til fjármögnunar Covid-aðgerða árið 2020. Talan var 200 milljarðar sirkabát. Já, já, akkúrat. Ég ætlaði að koma inn á þetta í ræðu minni en sá punktur hvarf mér úr minni.

Ég er bara ánægður að heyra hjá hæstv. fjármálaráðherra að þessi gögn, þessar greiningar, muni öll liggja glögglega fyrir í vinnu fjárlaganefndar því að þetta er, eins og ég segi, svona grundvöllurinn sem þarf að byggja undir fyrir ákvörðun okkar þingmanna bara í ljósi umfangs málsins og hversu flókið það var, óleysanlegt, illleysanlegt, en leystist síðan skyndilega og allir féllust í faðma. Það þarf að liggja fyrir að þingheimur geti rökstutt það síðar þegar öll kurl eru komin til grafar í þessu máli. Ég er sérstaklega áhugasamur um að átta mig á hvernig þróun þessa uppgjörs, miðað við þær forsendur sem nú liggja fyrir, hefði orðið í mismunandi vaxta- og verðbólgustigi eins og við okkur blasti hér fyrir fyrir nokkrum árum samanborið við það sem nú er og ég dreg ekki í efa að hafi myndað betri samningsstöðu en á tímabili lágvaxta sem við bjuggum hér við um nokkra hríð.