fjáraukalög 2025.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Þetta er einmitt svona hluti af þessum ónotum sem ég er með í maganum, þessum hnút sem er í maganum á mér vegna málsins, hvernig viðbrögðin voru þegar þessu máli var ýtt úr vör á síðasta kjörtímabili og hvernig það þróast síðan með miklum lögfræðilegum álitsgerðum svo skyndilega, eins og það horfir við mér. Og vissulega hefur þróun vaxta og verðbólgu mögulega skapað glugga sem gerði uppgjörið nærtækara. En svona í ljósi þess að stabbinn er með mjög álíka verðtryggða kröfu og bréfin sem er verið að endurfjármagna þá langar mig að sjá hvernig þessar undirliggjandi sviðsmyndir líta út gagnvart undanförnum 12 eða 18 mánuðum.
Ég var nú eiginlega búinn að ákveða að fara ekki inn á þær brautir en viðbrögð til að mynda þingmanna Viðreisnar á síðasta kjörtímabili voru mjög harkaleg, virkilega. Það er partur af því að mér þykir mikilvægt að við þingmenn fáum góðan grunn til að standa á við þessa ákvarðanatöku, hvað þetta fór hratt úr því að vera óforsvaranlegt með öllu, nálgunin sem lögð var til, yfir í það að það fannst lausn sem allir féllust í faðma yfir. Af því að mér þykir skemmtilegast af öllu að eiga við snúin vandamál og við eigum ekki að flýta okkur með mál — þótt ég átti mig á því að það sé tímapressa gagnvart þessu tiltekna máli þá eigum við ekki að flýta okkur að afgreiða frá okkur mál bara af því að þau eru flókin og leiðinleg. Það verður að vera smá gleði í leiðindunum.