156. löggjafarþing — 31. fundur,  28. apr. 2025.

fjáraukalög 2025.

319. mál
[23:20]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni svarið. Þetta var einmitt umræðan sem ég vildi svolítið vekja upp. Það var verið að rifja þetta upp fyrir mér að hér var óskað eftir sérstakri umræðu um þessar áætlanir þáverandi hæstv. ráðherra. Það var sú sem nú er hæstv. ráðherra, Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, sem óskaði eftir þessari umræðu og var farið mjög gagnrýnið í þá vegferð sem þáverandi hæstv. fjármálaráðherra var að hefja. Þannig að ég skil vel að hv. þingmaður sé svona aðeins að velta fyrir sér hvernig U-beygjurnar hafi orðið að þessu sinni. Ég segi bara: Það er auðvitað nauðsynlegt að hv. fjárlaganefnd fari vel yfir þetta mál. Það væri auðvitað eðlilegra að ég kæmi kannski bara upp í ræðu, virðulegur forseti, frekar en að vera að koma þessum sjónarmiðum mínum á framfæri hér í andsvari til hv. þingmanns, sem ég man þó ekki eftir að hafi farið svona harkalega í þáverandi hæstv. fjármálaráðherra.

En vegna þess að hv. þingmaður nefndi hér áðan samfélagsbanka og umræðuna sem skapaðist um það og þetta einstaklega kurteislega svar hjá hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra um hvað samfélagsbanki væri — við höfum reyndar heyrt þetta svar áður því að ég man að í umræðum um sölu Íslandsbanka þá kom þetta aðeins upp, í umræðunni og andsvörum. Þá í rauninni skildum við sem í þingsalnum sátum það þannig að það kynni að vera einhvers konar samkomulag undir hjá þessari ríkisstjórn sem fæli það í sér að Flokkur fólksins væri allt í einu tilbúinn að selja Íslandsbanka en hann hefur verið með það á stefnuskrá sinni að stofna samfélagsbanka. Það mátti skilja orðræðu þingmanna Flokks fólksins hér, og kannski mjög kurteislegt svar hæstv. ráðherra, sem svo að það lægi kannski einhvers konar samkomulag undir. Þannig að ég vil bara brýna hv. þingmann og okkur öll til að hafa augun á boltanum hvað þetta varðar því að það lá í loftinu að Flokkur fólksins væri mögulega að samþykkja sölu á Íslandsbanka vegna þess að þau gætu mögulega fengið eitthvað sem er samfélagsbanki í staðinn (Forseti hringir.) þrátt fyrir að hæstv. ráðherra sé kurteis að svara því að hann átti sig ekki alveg á því hvað felist í þeirri skilgreiningu. En í þessu frumvarpi hér og umræðu um ÍL-sjóð ættum við að sjá glögglega hvað samfélagsbanki er (Forseti hringir.) og hvað það getur þýtt fyrir samfélagið.