fjáraukalög 2025.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Þetta er áhugaverð vangavelta og svona í ljósi orwellskrar nálgunar ríkisstjórnarinnar á hin ýmsu úrlausnarefni sín þá gæti þetta auðvitað verið útfært sem leiðrétting eða að menn ætluðu að loka einhverri glufu. Það væri annar möguleiki. Nú er ég að rifja upp þessi samtöl og þessi sinnaskipti Flokks fólksins og mér þykir þessi kenning nú ekki sú galnasta sem ég hef heyrt hér úr pontu. Ætli við verðum ekki að taka það sem hvatningu til okkar að hafa augun á boltanum, eins og það er kallað, hvað þetta varðar, að menn finni sig ekki allt í einu í þeirri stöðu að hafa búið til nýjan banka án þess að hafa ætlað sér það, því að það getur verið erfitt að leiðrétta það eftir á eins og við erum að kynnast hér í þessu frumvarpi. En það er allrar athyglinnar og rannsóknarinnar virði að kafa ofan í sinnaskipti Flokks fólksins varðandi sölu á Íslandsbanka. Já, hnúturinn í maganum segir að það sé eitthvað þarna sem þurfi að fylgjast með.