156. löggjafarþing — 31. fundur,  28. apr. 2025.

fjáraukalög 2025.

319. mál
[23:24]
Horfa

Þórarinn Ingi Pétursson (F):

Frú forseti. Ég vil byrja á því að þakka hæstv. ráðherra fyrir að koma með þetta ágæta mál loksins inn í þingsal. Við erum búin að heyra forsöguna að því hvernig til hefur tekist og hvernig hefur til unnist. Svona í gamni, frú forseti, þá var það áðan frammi í veitingasal að ég og hæstv. ráðherra vorum að fylgjast með sauðburði í gegnum öryggismyndavél í mínum síma og þá spurði hæstv. ráðherra hvers hann ætti gjalda að koma með svona mál fyrir þingið. Ég held að það sé kannski hluti af því sem við þurfum alltaf að eiga undir, við þurfum alltaf að takast á við það sem gerst hefur í fortíðinni. Þar af leiðandi er það verkefni núverandi hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra að taka við þessum kaleik og færa hann hér fyrir þingið.

Ég get ekki orða bundist, frú forseti, heldur en að koma hér aðeins og tala fallega til samfélagsbankanna að vissu leyti. Við þurfum líka alltaf að hafa það í huga sömuleiðis að það er alltaf einhver orsök og hver verður síðan afleiðingin og hvort er það hænan eða eggið sem kemur á undan o.s.frv.? Það er áhugavert að velta því fyrir sér hvað gerist á þessum árum þarna upp úr aldamótunum. Við skulum muna að 2002 einkavæddum við bankana. Íbúðalánasjóður var nú búinn að starfa í þó nokkur ár þar á undan svo sem og við sem vorum að stíga okkar skref á húsnæðismarkaði á þeim tíma tókum lán hjá Íbúðalánasjóði og mig minnir að það hafi verið 90% lán og þótti það nú vera áhugavert. Síðan eru bankarnir einkavæddir og fara að bjóða betur og þá förum við að endurfjármagna og það er sennilega grunnurinn að því sem við erum að eiga við hér, að ábyrgð ríkissjóðs á þeim lánum sem voru þá í Íbúðalánasjóði lá fyrir og það er það sem við erum að eiga við í dag með þessu máli.

Mér finnst mjög mikilvægt í því ljósi að hv. þingmenn hafa skotið því hér að að við skulum bara varast samfélagsbankana — við skulum samt held ég tala bara um það að allt eru þetta mannanna verk, hvort sem það er einkavæðing eða samfélagsbankar, þetta er alltaf umgjörðin um það hvernig við vinnum hlutina. Um það snýst þetta. Við getum alltaf lært af sögunni í hvert og eitt skipti hvað það varðar. Við þurfum alltaf að glíma við ákveðna drauga og við skulum líka muna það að bankahrunið kostaði okkur þó töluvert, ansi mikið, þessa þjóð, en það verður áhugavert að fá það hjá hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra varðandi það eignasafn, sem var nú svo sem opnað á í umræðu áðan í andsvörum við hv. þm. Bergþór Ólason, sem til er innan ÍL-sjóðs, því að það er ekki eins og það sé eignalaust fyrirbæri sem er verið að eiga við.

Það er vel að þessu verki staðið, verð ég að segja, svona við fyrstu atrennu að renna yfir þetta frumvarp. Burt séð frá því hvað hv. þingmenn í einhverjum stjórnmálaflokkum hafa sagt á fyrri stigum þá er það nú einu sinni þannig að við þurfum alltaf að takast á við verkefnin og mér finnst það vera virðingarvert, hæstv. ráðherra, að við séum komin á þennan stað. Okkur sem höfum alist upp í Framsóknarflokknum og tengjumst samvinnuhugsjóninni og hinu og þessu hefur nú svo sem verið legið á hálsi með ýmislegt hvað þetta varðar en við svo sem verðum þá bara að ganga þann veg með því. Það er bara þannig og það þarf að læra af reynslunni. En gleymum því ekki að það verða ekkert einhverjar lausnir alltaf fundnar á því, hvort sem það er gert með samfélagsformi eða hvort við gerum það með einkavæðingu eða einhverju öðru og við þekkjum alveg nákvæmlega það sem við erum að gera í dag varðandi fjárfestingar sem eiga sér stað í atvinnurekstri úti á landi. Þær eru meira og minna allar í gegnum samfélagsbanka sem heitir Byggðastofnun. Það er vegna þess að einkaframtakið er ekki að lána til þeirra verkefna, bara eins og það sem er í landbúnaði. Við getum tekið fyrir varðandi smábátaútgerðir eða sjávarútveg eða hvað sem það er og þessi dæmi eru svo ljóslifandi fyrir okkur í dag sem höfum starfað í þessum geira til margra ára. Þetta er það sem er að gerast nákvæmlega í dag. Þá er alltaf spurningin: Hvar eru veðin, hver er ábyrgðin o.s.frv.? Það eru þá alltaf eignir væntanlega á bak við þau veð sem er lánað í hvert og eitt skipti og það er það sem þetta snýst um. Þetta snýst um það hvernig ábyrgðin er til komin. Í þessu tilfelli er það vegna þriðja aðila. Það er nú einu sinni þannig.

Ég held að það sé þannig að sagan hefur hingað til alltaf endurtekið sig í öllu því sem við höfum gert í gegnum árhundruðin á vissum skala og munum það bara að reyna að læra af þeim mistökum sem hafa verið gerð í hvert og eitt skipti. Við þurfum samt alltaf að hafa það í huga: Hvernig verða hlutirnir til, hver er ábyrgðin o.s.frv.? Hvort sem það er á samfélagsformi eða einkavæðingarformi þá þekkjum við það alveg og það er ekki lengra síðan en það fór hér allt á hliðina vegna ákveðinna hluta og það er mjög fróðlegt að skoða línurit varðandi úrvalsvísitölu frá árunum 2002–2008 og þetta er eins og hraundrangarnir í Öxnadal á sterum. Við sjáum alveg hvað gerist á þessum tíma. Og talandi um þau ártöl sem þessu máli tengjast sem við fjöllum um hér þá má lesa í það með ýmsu áhugaverðu hugarflugi og vera með ákveðna ímyndun um það og við sjáum alveg spegilmyndina í því hvað hefur gerst og við þurfum öll að líta í eigin barm og velta því fyrir okkur: Hvernig getum við komið í veg fyrir að svona lagað endurtaki sig? Ég held að það sé grundvallaratriðið.

Við þekkjum það alveg, af því að ég minntist hér á Byggðastofnun núna rétt áðan í fyrri minni ræðu, að við erum að horfa til þess hvernig við getum fjármagnað t.d. atvinnutækifæri í landbúnaði og fleiri hluti eins og úti á landi sem eru ekki jafn spennandi fjárfestingarkostir fyrir einkabankana, það er bara þannig í dag og þar af leiðandi hefur þá hið opinbera í gegnum Byggðastofnun verið að koma þarna að. Við þurfum alltaf að hafa þann möguleika fyrir hendi að hafa einhverja leið til fjármögnunar á atvinnutækifærum sem einkahlutinn er ekki sérstaklega spenntur fyrir og ég held að það hafi verið á sínum tíma hugsunin með Íbúðalánasjóði, vissulega fóru menn fram úr sér í kosningaloforðum með 90%, mig minnir að menn hafi byrjað á 70% hlutfalli og síðan voru menn nú komnir næstum því yfir 100%, ef ég man rétt. Það þótti bara rosalega spennandi að taka lán á þeim tíma og við þurfum að draga lærdóm af því sem var gert á þessum tíma. En við skulum ekki skella skuldinni á einhverja hugmyndafræði frekar en einhverja aðra því að hluturinn er alltaf sá hvernig var staðið að verkefninu og hvað gerðist síðan í framhaldinu og fyrst og fremst eru þetta ábyrgðir.

Frú forseti. Ef ég get nú reynt að svæla hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra hér í andsvar til þess að við fáum það upp varðandi það eignasafn sem var tæpt á í ræðum hér fyrr í kvöld því það er mjög stór þáttur í þessari umræðu um hvaða fjárhæðir er verið að eiga í þessu samhengi. Það er ekki bara sú tala sem kemur fram í frumvarpinu, rúmir 500 milljarðar, það hlýtur þá að vera eignasafnið, hvert það er sömuleiðis sem um er rætt í þessu samhengi, því að hér erum við að tala um skuldabréf sem gefin eru út í þessu samhengi. Af því að við vorum að tala um bankahrunið þá var nú, svo ég slái á létta strengi hér í restina, sá sem var seðlabankastjóri á þeim tíma — þá var talað um skuldabréf og ástarbréf sem voru og áttu að vera — tekið sé veð í þessu. Við skulum vona að þau bréf sem við teljum til eigna í þessum ágæta sjóði ÍL-sjóði séu ekki ástarbréf eða því um líkt.