156. löggjafarþing — 32. fundur,  29. apr. 2025.

Frestun á skriflegum svörum.

[13:31]
Horfa

Forseti (Þórunn Sveinbjarnardóttir):

Forseta hefur borist bréf frá dómsmálaráðherra þar sem óskað er eftir fresti til að veita skriflegt svar við fyrirspurn á þskj. 201, um almannavarnir í Grindavík, frá Vilhjálmi Árnasyni.

Einnig hafa borist bréf frá heilbrigðisráðherra þar sem óskað er eftir fresti til að veita skrifleg svör við eftirfarandi fyrirspurnum frá Ingibjörgu Isaksen: Á þskj. 265, um endurhæfingu ungs fólks, á þskj. 278, um netsölu áfengis, á þskj. 279, um lýðheilsumat og ÁTVR, og á þskj. 280, um rekstur ÁTVR og lýðheilsumarkmið og fyrirspurn Diljá Mistar Einarsdóttur á þskj. 358, um stoðþjónustu.

Þá hefur borist bréf frá atvinnuvegaráðherra þar sem óskað er eftir fresti til að veita skriflegt svar við fyrirspurn á þskj. 234, um veiðidagbækur hvalveiðileyfishafa, frá Sigmundi Erni Rúnarssyni.

Einnig hefur borist bréf frá umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra þar sem óskað er eftir fresti til að veita skriflegt svar við fyrirspurn á þskj. 246, um hljóðvist, frá Diljá Mist Einarsdóttur.

Að lokum hefur borist bréf frá félags- og húsnæðismálaráðherra þar sem óskað er eftir fresti til að veita skriflegt svar við fyrirspurn á þskj. 222, um kostnað við gerð og þróun upplýsingatæknilausna, frá Ingvari Þóroddssyni.