Störf þingsins.
Frú forseti. Eftir rúman mánuð útskrifast 5.000 nemendur úr tíu ára skyldunámi. Allir útskrifaðir nemendur og foreldrar þeirra þekkja þá óvissu og vanmáttartilfinningu sem fylgir útskriftareinkunn grunnskólanema þar sem einkunnir eru ráðgáta, samanburður við aðra er ómögulegur og jafnræði er ekkert. Hvað segja kennarar, skólastjórnendur, nemendur og foreldrar í nýlegri skýrslu menntamálaráðuneytisins um gildandi aðalnámskrá og námsmatskerfi sem þar er að finna? Mikil óvissa og óöryggi hefur ríkt árum saman. Helstu þættir aðalnámskrár eru illskiljanlegir, of háfleygir og of undirorpnir túlkun hvers og eins. Mikið ósamræmi er í því hvernig aðalatriði námskrár eru notuð í grunnskólum og ljóst að helstu markmið núverandi aðalnámskrár hafa ekki náðst.
Skoðum aðeins hvað nemendur og foreldrar þurfa að plægja sig í gegnum í námi grunnskólabarna sinna. Þetta þekkja foreldrar hér inni ef þeir hafa gluggað í námskrána. Er verið að vinna með grunnþættina eða lykilhæfnina? Á að gefa tölur, bókstafi eða umsögn í námsmati? Er búið að aðlaga hæfniviðmið fyrir 9. bekk? Hvað þýðir gulur á góðri leið? Er öruggt að nemandi sem útskrifast með B fari á annað hæfniþrep í framhaldsskóla ef hann er með C plús í ensku? Er fjólublár það sama og A en B það sama og 3? En B plús? Hér er tíu ára vinnu nemenda gefið langt nef. Það er ekkert samræmi, ekkert gagnsæi, engar haldbærar upplýsingar, ekkert aðhald, enginn metnaður og ekkert jafnræði. Þetta þurfa íslensk ungmenni að búa við. Þetta myndi fullorðið fólk aldrei sætta sig við, aldrei.