156. löggjafarþing — 32. fundur,  29. apr. 2025.

Störf þingsins.

[13:49]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M):

Frú forseti. Þessi liður heitir störf þingsins. Í störfum þingsins í gær, nánar tiltekið í óundirbúnum fyrirspurnatíma, gerðist nokkuð sem vart heyrir lengur til undantekninga hér í þessum sal og þá ekki, eðli málsins samkvæmt, hvað síst undir þeim dagskrárlið. Það er sá plagsiður hæstv. ráðherra að reyna ekki einu sinni að svara spurningum sem þingmenn beina til þeirra. Sú var þó sérstaðan í gær hversu grímulaust þetta birtist þingheimi þegar hv. þm. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson átti orðastað við hæstv. fjármálaráðherra, Daða Má Kristófersson. Fyrirspurnin sneri að því ófremdarástandi sem ríkir í starfsumhverfi leigubílstjóra sem er bein afleiðing af þeim breytingum sem gerðar voru af síðustu ríkisstjórn og m.a. Miðflokkurinn varaði mjög sterklega við og taldi einsýnt hverjar afleiðingar það myndi hafa og þær hafa nú raungerst. En þáverandi ríkisstjórn var mjög stolt í nafni frelsis, þ.e. ef villta vestrið er frelsi. Þegar hv. þingmaður og formaður Miðflokksins, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, viðraði áhyggjur sínar af því að fámennur hópur bílstjóra hafi yfirtekið húsnæði í eigu ríkisins til bænahalds þar sem allir bílstjórar áttu að hafa aðgang til að matast og komast á snyrtingu þá brá svo við að hæstv. ráðherra lét ekki svo lítið að reyna að svara málefnalega heldur sagði: Það stendur ekki til að eigendastefna ríkisins innihaldi sérstakar klásúlur um kaffiskúra. Þvílíkur útúrsnúningur og flótti frá spurningunni vakti enda athygli fjölmiðla. Fréttir eru nú farnir að snúast um flótta ráðherra og það ekki að ósekju, frú forseti.