Störf þingsins.
Virðulegi forseti. Sonur minn, sem er sjö ára, var lengi vel harðákveðinn í því að hann ætlaði að vera þrifmaður á sjúkrahúsi þegar hann yrði stór. Þessu svaraði hann til í marga mánuði í hvert sinn sem einhver spurði hann þeirrar algengu spurningar: Hvað ætlar þú að verða þegar þú verður stór? Eitt sinn spurði ég hann að því hvers vegna hann væri svona ákveðinn í því að verða þrifmaður á sjúkrahúsi og þá stóð ekki á svari. Það væri mikilvægasta starf í heimi og ef hann myndi vinna mikilvægasta starf í heimi þá yrði hann ríkur. Þá mundi ég eftir þætti á KrakkaRÚV sem fjallar einmitt um mikilvægustu störfin sem fólk vinnur. Í þættinum færðu þau rök fyrir því að ef spítalar væru ekki hreinir myndu fleiri láta lífið og þess vegna væri þetta mikilvægasta starfið. Þetta var í raun mjög rökrétt ályktun sem hann dró af þeim upplýsingum sem komu fram í þættinum en raunin er aldeilis önnur eins og við vitum, og það sama á við um önnur mikilvæg störf; fólkið sem hugsar um ömmu okkar og afa á hjúkrunarheimilum, fólkið sem stendur undir hagvextinum með því að þrífa hótel og afgreiða ferðafólk, gerir að fiskinum, byggir húsin og fræðir og hlúir að börnunum okkar. Mér þótti mjög leiðinlegt að þurfa að útskýra fyrir syni mínum að samfélagið virkaði því miður ekki svona. Eðlilega átti hann mjög erfitt með að skilja það vegna þess að það er nefnilega órökrétt.
Nú er baráttudagur verkalýðsins fram undan og langar mig að nýta tækifærið til að þakka verkalýðsfélögum fyrir þeirra mikilvægu störf í meira en 100 ár. Það sem verkalýðshreyfingin gerir er að viðhalda og verja mikilvægi starfa, að þau séu metin að verðleikum og að hlúð sé að því fólki sem vinnur störfin. Verkalýðshreyfingin passar upp á réttindi launafólks sem er ekki bara rökrétt heldur rétt og lífsnauðsynlegt í þeim órökrétta heimi skakks verðmætamats sem við lifum í. Barátta verkalýðsfélaga hefur skipt sköpum fyrir launafólk og almenning í landinu. Gleðilegan baráttudag verkalýðsins.