156. löggjafarþing — 32. fundur,  29. apr. 2025.

Störf þingsins.

[13:58]
Horfa

Guðmundur Ari Sigurjónsson (Sf):

Virðulegi forseti. Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur stendur þétt með íslensku þjóðinni. Á þessum fyrstu mánuðum hefur ríkisstjórnin starfað samhent að því að kortleggja helstu áskoranir þjóðarinnar og lagt fram hvert málið á fætur öðru sem eiga það sameiginlegt að bæta lífsgæði, styðja við grunnþjónustu og tryggja öryggi landsmanna. Samstaða ríkir þó ekki aðeins innan ríkisstjórnarinnar heldur sýna kannanir að þjóðin kann að meta verkstjórn Kristrúnar Frostadóttur og þau framfaramál sem ríkisstjórnin leggur fram. Íslenska þjóðin fagnar því að nú sé við störf ríkisstjórn sem heggur á hnúta, sýnir ábyrgð í ríkisrekstri og stuðlar að öryggi landsmanna.

Virðulegur forseti. Stærsta hagsmunamál heimilanna og fyrirtækjanna er að ná niður verðbólgu og vöxtum en lykillinn að því er hallalaus rekstur ríkissjóðs. Ábyrg hagstjórn getur skilað tugum milljarða í vasa íslenskra heimila og fyrirtækja í formi lægri vaxta á ári hverju. Ríkisstjórnin hefur nú þegar lagt fram fjármálaáætlun sem gerir ráð fyrir aukinni verðmætasköpun, aðhaldi í ríkisrekstri og lokun skattaglufa. Með þessum markvissu aðgerðum tekst ríkisstjórninni það sem síðasta ríkisstjórn náði aldrei, þ.e. að reka sig réttum megin við núllið. Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur hefur sýnt það í verki að hún ætlar að leysa málin og vinna fyrir fólkið. Hún er búin að koma yfir 80 málum inn í þingið til meðferðar og ætlar sér að höggva á stóra hnúta sem setið hafa í þjóðinni árum og jafnvel áratugum saman. Ríkisstjórnin hefur líka sýnt að hún hlustar á þjóðina og ætlar að standa við það sem hún lofaði og vinna verkin sem síðasta ríkisstjórn gat ekki komið sér saman um að vinna, því að ólíkt síðustu ríkisstjórn þá er þessi ríkisstjórn ekki með ofnæmi fyrir árangri. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)