Störf þingsins.
Virðulegi forseti. Hv. þm. Guðmundur Ari Sigurjónsson gleymdi að vísu alveg að fara yfir þakkir almennings fyrir hækkandi verðbólgu, en gott og vel.
Mér barst athyglisvert svar í gær frá hæstv. dómsmálaráðherra við fyrirspurn minni um hlutfall erlendra fanga í íslenskum fangelsum. Svar hæstv. ráðherra sýnir okkur svart á hvítu að hlutfall erlendra fanga er hátt og fer hækkandi. Þannig var staðan sú í fyrra að hlutfallið var 35% í afplánun og 55% í gæsluvarðhaldi, 35 og 55. Það er ljóst að ég mun fylgja þessari fyrirspurn eftir. Í sama svari virðist mér að hæstv. ráðherra sé sama sinnis og sú sem hér stendur varðandi það að við þurfum að leita leiða til að erlendir fangar afpláni dóma í meira mæli í sínu heimalandi. Með hliðsjón af þessu háa hlutfalli erlendra fanga finnst mér einboðið að við leitum líka annarra leiða, eins og Danir hafa til að mynda gert með samningum við önnur ríki.
En hvað skýrir þennan mikla fjölda útlendinga sem brjóta hér af sér? Við þekkjum það því miður ekki nægilega vel þó að við séum aðeins betur upplýst núna varðandi erlenda skipulagða glæpastarfsemi. En síðan höldum við ekki jafn vel utan um upplýsingar um erlenda ríkisborgara hér og nágrannalönd okkar gera sem hafa sérstök mælaborð og aðgengilegar upplýsingar um þessi mál. Danir mæla t.d. atvinnuþátttöku, menntun, dönskukunnáttu og glæpatíðni innflytjenda til að fylgjast með og meta árangur af aðlögun þeirra. Ef við berum ekki kennsl á vanda og áskoranir, hvernig á þá að mæta þeim? Ekki með því að loka augum og eyrum.
Ég hef lagt fram tillögu um að við komum hér upp sambærilegu mælaborði og skora á hæstv. ríkisstjórn að taka sig á í þessum efnum. Við getum ekki alltaf viljað vera nokkrum árum á eftir Norðurlöndunum og endurtekið öll þeirra mistök.