156. löggjafarþing — 32. fundur,  29. apr. 2025.

Fjárfestingarstefna lífeyrissjóðanna.

[14:05]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M):

Virðulegur forseti. Ég vil byrja á því að þakka hæstv. fjármálaráðherra fyrir að taka þátt í sérstakri umræðu um lífeyrissjóðina, reyndar lítinn hluta eða einn anga af starfi lífeyrissjóðanna sem er þó einn sá mikilvægasti og það er fjárfestingarstefna sjóðanna. Það þarf ekkert að fjölyrða um það að lífeyrissjóðirnir eru auðvitað mjög mikilvægir og öll eigum við verulegra hagsmuna að gæta í lífeyrissjóðum. En þó grunar mig að það séu ekki margir sem fylgjast reglulega með ávöxtun sjóðanna, hvað þá að menn setji sig inn í hvernig ávöxtunin fer fram. Fjárfestingarstefnur lífeyrissjóðanna liggja reyndar frammi, eins og kallað er, á heimasíðu hvers og eins sjóðs en jafnvel þegar þar er grannt skoðað þá vakna upp ýmsar spurningar.

Árið 2016 voru almennar kröfur til fjárfestingar lífeyrissjóðanna skýrðar með því að tilgreina tiltekin viðmið sem á þeim tíma voru talin skynsamleg við fjárfestingar sjóðanna. Var höfð hliðsjón af leiðbeiningum OECD og svokallaðri skynsemisreglu en ekki t.d. í anda magnbundinna takmarkana, sem hefur kannski verið gripið stundum til eða menn hafa nýtt að einhverju leyti hérna áður fyrr. En í þinglegri meðferð 2016 var bætt við ákvæði um siðferðisleg markmið. Það er ljóst að mínu mati að sjóðirnir sjálfir hafa útfært það viðmið í ætt við nokkurs konar bannreglu eða takmarkanareglu.

Að mínu mati ber lífeyrissjóðunum að leitast við að hámarka ávöxtun eigna sjóðfélaga. Það kemur beinlínis fram í lögum að hagsmunir sjóðfélaga skuli hafðir að leiðarljósi og að ávöxtun skuli fara fram með hliðsjón af þeim kjörum sem best eru boðin á hverjum tíma með tilliti til áhættu. Ég geri ráð fyrir að hæstv. fjármálaráðherra sé mér sammála en gef honum að sjálfsögðu tækifæri til að lýsa öðru yfir ef það á við.

Ólíkt hafast lífeyrissjóðirnir að þegar kemur að fjárfestingarstefnum og siðferðilegum viðmiðum. Ég geri í sjálfu sér ekki athugasemdir við það vegna þess að þeir eru í samkeppni hver við annan og þeir hafa fullan rétt á að móta sínar tilteknu stefnur að þessu leyti. Ég ætla nú hins vegar ekki að fara að kafa djúpt ofan í þessar stefnur en ég sé t.d. að Lífeyrissjóður verslunarmanna, sem er svo sem til fyrirmyndar með upplýsingagjöf á heimasíðunni, eins og þeir eru nú kannski flestir sjóðirnir líka, hefur sett sér stefnu um útilokun fjárfestingarkosta með tilliti til ábyrgra fjárfestinga og útiloka að hluta eða að fullu fjárfestingar í tiltekinni starfsemi sem samræmist ekki skilgreindum viðmiðum, eins og þar segir. Þannig eru verðbréf t.d. útilokuð þar sem þau eru gefin út af aðila sem hefur gerst brotlegur við ákveðinn tiltekinn alþjóðasáttmála en einnig ef aðili hefur tekjur af tiltekinni starfsemi sem þó getur verið bara lögleg og, að því er virðist að mínu mati, jafnvel nauðsynleg öllum þorra heimsbúa. Þannig hefur t.d. Lífeyrissjóður verslunarmanna útilokað úr eignasafni sínu framleiðendur tóbaks, sem ríkið dreifir nú hins vegar bara hægri vinstri hér um landið, framleiðendur umdeildra vopna, tilgreinda flokkar jarðefnaeldsneytis og svo útgefendur sem brjóta gegn einhverjum tilteknum alþjóðasamningum sem falla undir samning Sameinuðu þjóðanna sem heitir Global Compact. Það liggur fyrir útilokunarlisti og þar eru bara erlend félög. Skyldu vera innlend félög? Ætti ekki að upplýsa um það? Ég spyr hæstv. fjármálaráðherra hvort honum finnist það réttlætanlegt að lífeyrissjóðir hafi önnur markmið í sínum fjárfestingum en hámörkun arðsins.

Þessi listi sem liggur fyrir frá Lífeyrissjóði verslunarmanna er um margt áhugaverður. Þar er t.d. flugvélaframleiðendurnir Airbus og Boeing, en mörgþúsund Íslendingar hafa beint lífsviðurværi af framleiðslu þessara fyrirtækja. Ég sé líka hér að þar eru, eins og ég nefndi áðan, tóbaksframleiðendur sem ríkið er þó í ágætum viðskiptum við, og hér er fullt af fyrirtækjum sem veita lífsnauðsynlega þjónustu. Vopnin eru auðvitað eitthvað sem hægt er að tala endalaust um en ég veit ekki betur en að íslensk stjórnvöld hafi það sérstaklega á stefnuskrá sinni að kaupa vopn og senda þau út um allar koppagrundir og efla vopnabúr Evrópu. Þannig að menn hljóta að fara að spyrja sig hversu sjálfbær þessi stefna lífeyrissjóðanna er að þessu leyti.

Sá sjóður sem kannski heyrir nú helst undir hæstv. fjármálaráðherra er Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins en hann fylgir svokallaðri sjálfskipaðri sjálfbærnistefnu með því að greina UFS-upplýsingar, umhverfi, félagslega þætti, og stjórnarhætti fyrirtækja sem hann fjárfestir í og birtir lífeyrissjóðurinn einkunn eignasafnsins. Þar kennir ýmissa furðulegra grasa varðandi innlend fyrirtæki. Ég spyr: Hverju hafa þessir listar skilað sjóðfélögum þessara lífeyrissjóða? Hefur ávöxtunin verið betri?

Ég spyr hæstv. fjármálaráðherra hvort ekki sé rétt að upplýst verði um hversu mikil áhrif þessi útilokunarstefna lífeyrissjóðanna hefur haft á ávöxtun og hagsmuni sjóðfélaga. Og nú ber ríkið ábyrgð á Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins. Telur hæstv. fjármálaráðherra ekki brýnt að ávöxtun sjóðsins sé með besta móti og þannig að fjárfestingarstefnan taki mið af þeirri kröfu?