156. löggjafarþing — 32. fundur,  29. apr. 2025.

Fjárfestingarstefna lífeyrissjóðanna.

[14:16]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S):

Virðulegur forseti. Ég vil þakka sérstaklega hv. þm. Sigríði Andersen fyrir að vekja máls á þessu þarfa umræðuefni hér í þingsal. Við erum með heilt yfir frábært lífeyrissjóðakerfi, þó að oft megi gott bæta, en hlutverk lífeyrissjóðanna er númer eitt, tvö og þrjú að hámarka arðsemi þess fjár sem þeim er treyst fyrir af sjóðfélögum, að tryggja að hægt sé að greiða út lífeyrissjóð þegar sá dagur kemur að við förum á eftirlaun. Það er fyrsta og eina hlutverk lífeyrissjóðanna. Ég tek undir með hv. þingmanni að það er ýmislegt farið að þvælast fyrir lífeyrissjóðunum í þeirra stefnu. Til dæmis er talað um UFS, umhverfis- og félagslega stjórnunarþætti og aðrar viðmiðanir sem jafnvel stjórnendur eða stjórnir eru farnar að taka upp, sem ganga jafnvel lengra en mögulega Evrópusambandið. Draghi-skýrslan kemur m.a. inn á að jafnvel sé verið að ganga of langt í þessum málum sem dregur úr samkeppnishæfi Evrópu. Ég tek undir með hv. þingmanni að það skýtur skökku við þegar við erum að setja okkur einhvers konar siðferðileg viðmið um að kaupa t.d. ekki í vopnaframleiðslufyrirtækjum Evrópu á sama tíma og við erum að kaupa vopn til þess að selja öðrum og erum þá að styðja það að auka eigi vopnaframleiðslu og styðja vopnaframleiðslu í Evrópu. Ég vil því fagna þessari umræðu. Hún er þörf og þetta er eitthvað sem við verðum að ræða, af því að lífeyrissjóðirnir og þeirra ávöxtun er það sem skiptir lífeyrisþegana mestu máli á Íslandi.