156. löggjafarþing — 32. fundur,  29. apr. 2025.

Fjárfestingarstefna lífeyrissjóðanna.

[14:18]
Horfa

Arna Lára Jónsdóttir (Sf):

Frú forseti. Ég myndi gjarnan vilja fá þessar örfáu sekúndur sem hv. þm. Jens Garðar Helgason skildi eftir, en ég vil þakka hæstv. málshefjanda, Sigríði Á. Andersen, fyrir þessa umræðu. Lífeyrissjóðirnir eru sameign okkar landsmanna og umgjörð þeirra og reglur okkur mikilvægar. Það eru ekki mörg ár síðan flokkunarreglugerð ESB var innleidd í íslenskan rétt, sem snýr að upplýsingagjöf um sjálfbærni á sviði fjármálaþjónustu og flokkunarkerfi fyrir sjálfbærar fjárfestingar. Því er ágætistímapunktur til þess að líta í baksýnisspegilinn og reyna að meta hvernig til hefur tekist. Flokkunarreglugerðin setur fram samræmt flokkunarkerfi með því að lýsa hvaða viðmiðum atvinnustarfsemi þarf að fullnægja til að hún teljist vera umhverfislega sjálfbær og gerir fyrirtækjum kleift að meta hvort starfsemi þeirra sé þannig eða ekki. Raunin er sú að lífeyrissjóðir hafa lagt sífellt meiri áherslu á ábyrgar fjárfestingar, þ.m.t. sjálfbærni og loftslagsmál, sem tengist flokkunarreglugerð ESB og ESB-viðmiðunum.

Íslenskir lífeyrissjóðir eru vel reknir, afkoma þeirra er góð og arðsemi er mikil. Áætluð raunávöxtun íslenskra lífeyrissjóða, bæði fyrir samtryggingu og séreign, var jákvæð fyrir árið 2024 um 6,5%. Lífeyrissjóðirnir horfa auðvitað til langtímaávöxtunar við fjárfestingar enda eru skuldbindingar þeirra til langs tíma. Árangur við ávöxtun til langs tíma skiptir því meginmáli en síðustu tíu árin hefur meðalraunávöxtun sjóðanna verið um 4%. Því er ekki að sjá að regluverk í kringum fjárfestingarstefnu lífeyrissjóðanna hafi verið of íþyngjandi eða hafi haft neikvæð áhrif á ávöxtun sjóðanna. Sú ábyrgð sem lögð er á herðar lífeyrissjóðanna um að ávaxta sameign okkar landsmanna og tryggja okkur áhyggjulaust ævikvöld er mikil en það skiptir máli að lífeyrissjóðirnir fjárfesti í fjölbreyttum verkefnum án þess að gefinn sé afsláttur af arðsemi til að draga úr áhættu. Það þarf að passa að hafa ekki öll eggin í sömu körfu.