Fjárfestingarstefna lífeyrissjóðanna.
Frú forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þm. Sigríði Á. Andersen fyrir að koma þessari umræðu aðeins af stað vegna þess að þetta er mjög áhugavert, sérstaklega í ljósi þess að umræðan á auðvitað ekki kannski bara snúast um að fara að opna á fjárfestingar í fyrirtækjum í vopnaframleiðslu eða þvílíku, sem ég myndi segja að eftirlaunasjóðir vinnandi fólks hafi nú verið að vinna gegn og frekar þá bæta í, að fjárfesta t.d. ekki í félögum sem stunda félagsleg undirboð, launaþjófnað og því um líkt. Ég hefði kannski viljað sjá umræðuna fara meira í þá átt að opna enn frekar fyrir fjárfestingar í innviðum. Fjárfestingarþörf íslenska lífeyrissjóðakerfisins er gríðarleg. Mismunurinn á inn- og útstreymi nemur á annað hundrað milljörðum og sömuleiðis líka það sem er að koma inn af fjárfestingum og ekki veitir nú af þar sem við erum með stór verkefni fram undan eins og Sundabraut og fleiri framkvæmdir og ég tala nú ekki um húsnæðisuppbyggingu. Ef við tökum bara lífeyrissjóðina í Skandinavíu þá eru þeir með um 10% af heildareignum í fjárfestingu og uppbyggingu á íbúðarhúsnæði og hjúkrunarheimilum. Það myndi þýða að íslensku lífeyrissjóðirnir væru með um 800 milljarða miðað við stærð íslenska kerfisins í þessari innviðafjárfestingu. Þetta finnst mér að málið eigi að snúast um.
Svo vildi ég taka líka fram að það er misskilningur að lífeyrissjóðir eigi fyrst og fremst að hámarka ávöxtun eigna. Þeir eiga að hámarka ávöxtun eigna að teknu tilliti til hagsmuna sjóðfélaga og að teknu tilliti til áhættu. Og hverjir eru hagsmunir sjóðfélaga? Sjóðfélagar eru 16 ára gamlir þegar þeir byrja að greiða í lífeyrissjóð, til dauðadags, og hagsmunir þeirra eru lífskjör okkar frá degi til dags alla starfsævina og allan eftirlaunaaldurinn þannig að hámarksávöxtun fer ekki endilega og alltaf saman við hagsmuni okkar almennings, sjóðfélaga.