Fjárfestingarstefna lífeyrissjóðanna.
Frú forseti. Ég vil þakka hv. málshefjanda fyrir að vekja athygli á þessu máli sem er stór angi af miklu dellumakarí sem við höfum horft upp á undanfarin ár og tengist mjög náið ýmsu Evrópuregluverki sem innleitt hefur verið hér, þar sem íslensk stjórnvöld hafa jafnan gleypt það allt saman, agnið, krókinn, sökkuna og flotholtið, í einum munnbita. Nú er til að mynda ýmsum fjármálafyrirtækjum ætlað að rannsaka öll fyrirtæki sem þau gætu hugsað sér að fjárfesta í eða ráðleggja einhverjum að fjárfesta í til þess að meta samfélagslega þætti, oft á tíðum umhverfismál. En lífeyrissjóðirnir hafa það hlutverk fyrst og fremst, og raunar eingöngu, að vernda peninga þeirra sem greiða inn í þá og treysta þeim til þess og ávaxta þá peninga. Ef þrengt er að möguleikum lífeyrissjóðanna til þess að ávaxta þá peninga þá munu þeir ná lakari árangri en aðrir í því. Það skekkir þá enn samkeppnisstöðu Íslands, ég tala nú ekki um lífeyrisþegana, við þær stofnanir og þau lönd sem setja sér ekki sömu skorður. Auðvitað er eðlilegt að menn geti sett sér ákveðnar skorður ef ákveðin fyrirtæki til að mynda eru talin mjög vafasöm en það að setja einhverja heildarlínu á það í hvers konar starfsemi megi fjárfesta og hverri ekki skapar bara vandamál. Hér nefndi hv. málshefjandi lista eins lífeyrissjóðs. Ég velti fyrir mér: Eru á þeim lista fyrirtæki eins og Mitsubishi, Saab og Rolls Royce? Ótal fyrirtæki sem framleiða eitt og annað voru þekkt fyrir að framleiða líka vopn. Það að ríkisstjórn Íslands skuli telja ásættanlegt á sama tíma að hvetja til þess að dregið sé úr fjárfestingarmöguleikum lífeyrissjóðanna ef eitthvað er tengt vopnaframleiðslu (Forseti hringir.) og að sérhæfa sig í að kaupa 155 mm sprengikúlur, m.a. frá BAE sem ég held að sé ekki á þessum lista, er sérkennilegt.