Fjárfestingarstefna lífeyrissjóðanna.
Virðulegur forseti. Ég vil byrja á að þakka fyrir þessa umræðu sem hér á sér stað. Þarna eru margar spurningar sem væri hægt að tala um í tvær mínútur hverja, en tíminn leyfir það ekki.
Mig langar aðeins að drepa niður í orðalaginu hámörkun arðs og því sem einn þingmaður nefndi hér áðan um að það væri ýmislegt sem væri að þvælast fyrir lífeyrissjóðunum. Þegar við erum að tala um hvað hefur verið að þvælast fyrir lífeyrissjóðunum þá er sá aðili sem hefur þvælst mest fyrir lífeyrissjóðunum íslenska ríkið. Lífeyrissjóðir höfðu til aldamótanna 2000 bara heimild til að fjárfesta erlendis upp á 50%. Við erum nýbúin að breyta því hámarki í 65%, gerðum það 2023, en bara eitt lítið hænuskref í einu, 1% á ári í 15 ár, þannig að 2038 geta lífeyrissjóðirnir fjárfest allt að 65%. Til hvers er þetta? Jú, til að verja íslenskan gjaldmiðil sem að mínu mati er ónýtur. Norski olíusjóðurinn, sem hér hefur verið nefndur, fjárfestir bara í útlöndum af því að menn telja að ávöxtunin sé betri þar en innan lands, fyrir utan öll ruðningsáhrifin sem íslenskir lífeyrissjóðir hafa hér á markaði.
Mig langar líka að nefna að hér er talað um að málefnaleg sjónarmið hafi verið höfð uppi um að lögbundin iðgjöld í lífeyrissjóði séu orðin of há. Ég vil bara minna á það að 2016 fékkst í gegn í kjarasamninga hækkun á framlagi lífeyrissjóða upp á 3,5%. Framlagið var bara 12%. Það þýddi að réttindaávinnsla manns á heilli starfsævi var u.þ.b. 55%. Með þessari breytingu er réttindaávinnslan af lögbundnum framlögum í lífeyrissjóði upp í 74–76% en það tekur 40 ár. (Forseti hringir.) Það tekur heilan starfsaldur að vinna sér inn slík réttindi.