156. löggjafarþing — 32. fundur,  29. apr. 2025.

Fjárfestingarstefna lífeyrissjóðanna.

[14:30]
Horfa

Vilhjálmur Árnason (S):

Virðulegi forseti. Hér ræðum við risamál, lífeyrissjóðina og fjárfestingar þeirra, á tveimur mínútum. Ég held að það sé einmitt mikilvægt fyrir okkur hér í þessum sal að velta þessu fyrir okkur og taka þessa umræðu svolítið oftar og dýpra. Ég hef haft miklar áhyggjur undanfarið einmitt af því hvernig fjárfestingar lífeyrissjóðanna eru, þeir eru orðnir langstærstir í Kauphöllinni og eru jafnvel farnir að vera í samkeppni við sjálfa sig og ekki með virka eignaraðild og annað slíkt þannig að þetta er ekki nógu gott og svo kemur ávöxtunarkrafan. Nú er mikið rætt um veiðigjöld og arðgreiðslur frá sjávarútveginum. Sjávarútvegur á Íslandi fór ekki að borga neinn arð út úr greininni fyrr en lífeyrissjóðirnir keyptu í sjávarútvegsfyrirtækjunum í gegnum Kauphöllina, svo það sé nú bara sagt, við sjáum hvaða áhrif þeir hafa. Því held ég að það sé mikilvægast — og sem betur fer hefur hæstv. ríkisstjórn boðað að stofnað verði innviðafélag til að fara í innviðafjárfestingar í samgöngukerfum — að við búum til kerfi þannig að lífeyrissjóðirnir geti komið með myndarlegum hætti að innviðafjárfestingu frekar en að vera svona dóminerandi í Kauphöllinni. En við þurfum samt líka að fjölga þeim sem eru á hlutabréfamarkaði með því að auka séreignarsjóðina og hvetja almenning til að fara meira í fjárfestingar og annað slíkt í gegnum séreignarsparnað sinn og breyta iðgjöldunum yfir í meira frelsi þar og hafa þetta í huga. Ég vona að við náum að sameinast um stór skref í því að breyta þeirri stöðu sem mér finnst ekki vera nógu góð í dag í fjárfestingum lífeyrissjóðanna.