156. löggjafarþing — 32. fundur,  29. apr. 2025.

Fjárfestingarstefna lífeyrissjóðanna.

[14:37]
Horfa

Stefán Vagn Stefánsson (F):

Virðulegur forseti. Ég biðst afsökunar á að hafa misst af slotti mínu hér áðan. Kröfur um ábyrgar fjárfestingar aukast stöðugt og verða sífellt mikilvægari, bæði á Íslandi og alþjóðlega. Skýrari lagarammi varðandi sjálfbærni og siðferðileg viðmið með tilliti til starfsemi lífeyrissjóða gæti stuðlað að auknu gagnsæi og betri skilningi sjóðfélaga og stjórnvalda á fjárfestingarstefnu sjóðanna. Vart þarf að taka fram að engin slík breyting á gildandi lagaramma yrði að veruleika án samráðs við alla hagsmunaaðila, þar á meðal lífeyrissjóðina sjálfa, sjóðfélaga og sérfræðinga á sviði sjálfbærni. Sannleikurinn er sá að lög um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða, nr. 129/1997, fjalla einungis að takmörkuðu leyti um siðferðileg viðmið, sjálfbærni og ábyrgar fjárfestingar. Því langar mig að vita hvort hæstv. ráðherra telji tilefni til að hefja endurskoðun á þessum lögum í þeim tilgangi að tryggja betur gagnsæi og samræmi í fjárfestingarstefnu lífeyrissjóða með áherslu á ábyrgar fjárfestingar, góða stjórnunarhætti og skýra miðlun upplýsinga til sjóðfélaga þannig að hagsmunir þeirra verði tryggðir sem best til lengri tíma.