fjáraukalög 2025.
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir að koma hér með þetta mál, ekki það að fjárauki sé eitthvert sérstakt fagnaðarefni, það er langur vegur frá. Hins vegar er það þannig að þessi fjárauki, eins og mér sýnist hann vera, gengur í rauninni bara út á eitt, gengur út á það að hér hefur náðst samkomulag við kröfuhafa Íbúðalánasjóðs sem gerir það að verkum að það þarf að gera þann reikning upp, þann ríkisbankareikning upp, þann samfélagsbankareikning upp, sem er auðvitað stór, og þetta er sorgleg saga. En það er alla vega gott að hæstv. ríkisstjórn og hæstv. ráðherra hafi haldið áfram því verki sem fyrrverandi formaður Sjálfstæðisflokksins hóf og fékk nú ekki miklar þakkir fyrir. Þó svo að allir vilji Lilju kveðið hafa núna þá fannst mér gott í umræðu hér í gær þar sem hv. þm. Bergþór Ólason sagði að þetta liti kannski of vel út til að geta verið satt og það gerði það að verkum að hann hefði áhyggjur af málinu. Nú skildi ég ekki hv. þingmann þannig að hann teldi svo vera. Hans skilaboð voru, og ég tek undir þau, að við þurfum að skoða þessi mál mjög vel því að þegar við skoðum forsögu þessa máls þá er mjög mikilvægt að við lærum af henni. Ég ætla aðeins að fara yfir það, virðulegi forseti, vegna þess að ég hef áhyggjur af því að við séum ekki að því.
Lærdómurinn ætti að vera sá — og nú hef ég fylgst með þessum málum og tekið þátt í umræðu um þessi mál í mjög langan tíma og löngu áður en ég kom hér inn á þing — að við Íslendingar vorum með fullkomlega galið kerfi þegar kom að því að aðstoða fólk við að kaupa sér eignir. Kerfið gekk út á það að við vorum með vaxtabótakerfi sem hvatti fólk til að auka sínar skuldir. Sem betur fer hefur því verið breytt á undanförnum árum þannig að það er verið að hvetja fólk og hjálpa fólki við að eignast og það hefur verið gert með viðbótarlífeyrissparnaðarleiðinni. Við Sjálfstæðismenn höfum barist fyrir því og ég hef barist fyrir því síðan ég var ungur Sjálfstæðismaður, en ég er aðeins kominn af þeim aldri núna, virðulegur forseti.
Svo vorum við með alltaf ríkisbanka. Nú erum við að gera upp Íbúðalánasjóð. Áður var það Húsnæðisstofnun og ef einhver heldur það, virðulegur forseti, að Húsnæðisstofnun hafi verið eitthvert stórkostlegt fyrirbæri sem við ættum að sakna þá er það fullkominn misskilningur. Það var sama hörmungin og þegar menn fóru í þennan samfélagsbanka tvö, Íbúðalánasjóð; pínulítill ríkisbanki með lítið umfang en kostar okkur gríðarlegar upphæðir og við vitum ekki enn þá hversu mikið það allt saman er en það verður hár reikningur, svo mikið er víst.
Síðan er hitt og ég var að hugsa um það, virðulegur forseti, af því að við tökum umræðuna núna, að það eru allir sammála um það — þótt ég hvetji fólk til þess að skoða þá skýrslu sem var gefin út 2012, sem er mjög áhugaverð og það segir á fyrstu glærunni í kynningunni þar, með leyfi forseta:
„Allir líklegast í góðri trú en sáust kannski ekki fyrir. Verðum að læra af mistökum — ekki þau einu sem gerðu mistök. LSE, AGS. Vanda sig og ana ekki í hlutina. Vera raunsæ og hlusta á ráð þeirra sem þekkja til.“
Það segir líka:
„Taumlaus ákefð og hjarðhegðun ásamt áráttu til að hafna öllum efasemdum.“
Ég man alveg þessa tíð, það eru allir sammála um hvernig þetta byrjaði þó svo að ef maður skoðar skýrsluna sé margt annað sem fór úrskeiðis heldur en bara afgreiðsla þingsins. Þetta kom með kosningaloforði um 90% lán í gegnum ríkið, gegnum Íbúðalánasjóð.
Virðulegur forseti. Það var bara gríðarlega vinsælt mál og hér í þinginu vorum við ekki mörg sem reyndum að halda aftur af þessu. Við sömdum um þetta í ríkisstjórnarsamstarfi, það er bara þannig. Það var eina leiðin vegna þess að einn flokkur vann kosningarnar á þessu, allir sammála um það. Þetta var gríðarlega vinsælt.
Hvað erum við að gera núna, virðulegi forseti? Við erum að ræða skattbreytingar sem augljóslega eru gerðar á miklum hraða, hækkun á sköttum, og þær eru alveg gríðarlega vinsælar. Hér koma stjórnarliðar og færa ekki rök fyrir því að það væri vandi að skerða samkeppnisstöðu fiskvinnslunnar og koma okkur í svipað kerfi í Noregi, þurfa það ekki, þau veifa bara hér í þingsölum og í útvarpsþáttum: Heyrðu, þetta er bara vinsælt, þetta er gríðarlega vinsælt. Nákvæmlega sömu rökin og voru þegar menn voru að keyra þessar lagabreytingar í gegn. Auðvitað var skaðinn að einhverju leyti tempraður með hámarki á lánin. Sérfræðingarnir töldu nú að það væri hægt að koma í veg fyrir það sem síðan gerðist en í ofanálag kemur það í ljós þegar maður skoðar rannsóknarskýrsluna að þetta var mjög munaðarlaus sjóður og óskýr stjórnsýsluleg staða ÍLS, sjálfstæð en þó ekki ráðherraskipuð stjórn, annars staðar kemur það fram að þingið hafði löngu áður afsalað sér sínu ábyrgðarhlutverki með því að hætta að kjósa í stjórnina og sjálfstýringin — og ef menn fara bara yfir glærusýninguna, það sem gerðist þarna, ég ætla ekkert að fara í það allt saman, ég hef ekki tíma til þess á stuttum tíma, þetta var með miklum ólíkindum. Nú myndi maður trúa því að svona gæti ekki gerst aftur en hvað erum við búin að vera að gera núna, virðulegur forseti? Við höfum verið á fullu í ábyrgðarleysisbyltingu sem er mjög vinsæl.
Nú er það þannig að í allar stjórnir ríkisfyrirtækja, og þetta eru engin smáfyrirtæki — það veit enginn hver ber ábyrgð á þeim stjórnarmönnum, þetta er allt svo faglegt. Reyndar var embættismaður fjármálaráðuneytisins sem kom inn í hv. fjárlaganefnd og sagði glottandi frá því að þessu hafi verið laumað inn í frumvarp hérna rétt fyrir kosningar, sem var gert, það var engin umræða um það. Síðan hefur hæstv. ríkisstjórn hreykt sér af því að þetta sé þeirra mál, að nú sé lífið miklu betra því að stjórnmálin koma hvergi nálægt því að koma að stjórnarmönnum í stjórnum fyrirtækja. Ókei, gott og vel. Bíddu, förum aðeins yfir það. Hver ætlarðu að skamma ef ríkisfyrirtækin ganga fram með einhverjum hætti þannig að það veldur skaða eða misbýður fólki? Hver ber ábyrgð á Isavia? Það veit enginn. Hver ber ábyrgð á orkufyrirtækjunum? Það veit enginn. Núna hefur þetta verið lengi þannig á vettvangi sveitarstjórnarmála, þar ertu með byggðasamlög á höfuðborgarsvæðinu. Hver ber ábyrgð á Strætó? Af hverju kemur hann aldrei á réttum tíma? Hver ber ábyrgð á Sorpu? Það var nú eitthvert fíaskó þar upp á nokkra milljarða. Hvaða stjórnmálamaður ber ábyrgð á því? Það veit enginn, ekki nokkur maður. Okkur finnst þetta fyrirkomulag svo gott að við ætlum að koma þessu yfir á alla hluti. Lýðræði er langversta formið til að stjórna sem komið hefur upp í sögu mannkyns, fyrir utan öll hin. Kosturinn við lýðræði er að þú getur kosið fólk út, þú getur skammað fólk og þú getur rekið það með atkvæðinu. Við erum að búa okkur til fyrirkomulag nákvæmlega eins og var þegar Íbúðalánasjóður var að allir stjórnmálamenn, hvort sem þeir eru ráðherrar, ríkisstjórn eða hver það er, segja: Heyrðu, ég veit ekkert um þetta mál. Ég ber ekki ábyrgð á þessu fólki sem þarna er. Ég gleymdi nú Betri samgöngum og öðru slíku.
Mér finnst mikilvægt að við ræðum þessi mál. Við breytum ekki því sem á undan er gengið í þessu. Við þurfum bara að sjá til þess að það samkomulag sem er núna sé þannig úr garði gert að það lágmarki, virðulegi forseti, kostnað ríkissjóðs, skattgreiðenda. En þarna í grunninn er þetta það að menn eru með samfélagsbanka sem er mjög vinsæll. Það er rosalega vinsælt að tala um samfélagsbanka en hann er í eigu ríkisins og í þessu tilfelli var þetta svo mikið belti og axlabönd að þeir sem lánuðu til húsnæðislána, sem fóru þá í gegnum Íbúðalánasjóð, voru með ríkisábyrgð ofan á allt saman. Það var ríkisbanki sem lánaði til ríkisbankans, var með ríkisábyrgð. Það bar enginn ábyrgð á bankanum. Það eru gerðir þarna hlutir sem eru með slíkum ólíkindum að það er reyfarakennt og svo er bara reikningurinn einhverjum áratugum seinna sendur til skattgreiðenda. Þú getur ekki skammað nokkurn aðila fyrir þetta því að það er ekki nokkur leið að finna einhvern sem ber pólitíska ábyrgð á því. En okkur finnst þetta svo gott að við ætlum og erum búin að koma þessu yfir á öll ríkisfyrirtæki. Ég fullyrði það að það er hvergi annars staðar í heiminum sem fyrrverandi forsætisráðherra til sex ára og ráðherra til margra ára, fyrrverandi ráðherra sem er nú langskólagenginn í hagfræði — þeir voru ekki faglega hæfir til að fara í stjórn þessara ríkisfyrirtækja. Ég ætla ekkert að tala niður það fólk sem er þarna í stjórnum en það er oft sem það er skrýtið mál að reyna að útskýra þetta fyrir útlendingum.
Hv. þingmenn og virðulegi forseti. Ég hvet ykkur til að útskýra þetta fyrir útlendingum. Með fullri virðingu, ef þetta er eitthvað sem eru kölluð fagleg vinnubrögð þá skulum við bara reyna að koma okkur út úr faglegum vinnubrögðum eins hratt eins og mögulegt er því að í því felst engin skynsemi.
Virðulegi forseti. Það má líka draga þá ályktun, og ég þekki það mjög vel og ég hef reynt að taka upp þessi mál, þ.e. húsnæðismálin, sem eru gríðarlega mikil mál og það tengist nú m.a. lífeyrissjóðunum sem hér var verið að ræða, ágætisumræða — maður fær aldrei og hefur aldrei fengið neina athygli, hvorki á greinaskrif né ræður. Á því er þó ein heiðarleg undantekning. Þá ræddi ég þessi mál, Íbúðalánasjóð og húsnæðismálin, og þá fylltist þingsalurinn. Það kom bara hver einasti hv. þingmaður sem var í húsi til að fylgjast með. Ég hélt að loksins væri þingið búið að vakna því að mér finnst orð mín hafa bara elst frekar vel. En það var ekki, virðulegur forseti. Ástæðan var sú að ég var buxnalaus og eftir því sem ég best veit er ég eini hv. þingmaðurinn sem hefur haldið ræðu hér án buxna. Þær voru að vísu en rifnuðu hérna í tætlur. Alnetið man þetta ágætlega. Ég hélt í smástund að fólk væri að hlusta á það sem maður hefði að segja um þessi mál. Það var ekki því að það voru aðrar ástæður sem drógu menn inn í þingsal.
Ég held að það væri gott fyrir okkur að við settum aðeins svona línuna á það hvað við erum að gera núna því að allir eru sammála um að það var fullkomlega galið að ríkið skyldi ganga á undan, fara inn á markaðinn sem einkaaðilar voru komnir inn á með samfélagsbanka með ríkisábyrgð á fjármögnuninni og reyna að vinna þá samkeppni. Ég held að það sé ágætt að skoða hvort við séum að gera eitthvað af þessu núna. Erum við að nota fjármuni skattgreiðenda í áhætturekstur? Ég held, virðulegi forseti, að niðurstaðan sé sú að við komumst að því að við erum að gera það á mörgum sviðum.
Einhvern tímann varð hér markaðsbrestur. Ágætur hv. þingmaður kom hingað í gær og nefndi það að Byggðastofnun er t.d. að lána til atvinnureksturs sem enginn annar er tilbúinn — það er ákveðinn markaðsbrestur, en í þessu tilfelli var það ekki málið. Í þessu tilfelli var það þannig að ríkið gekk á undan. Í stað þess að draga sig til baka þegar einkaaðilar voru tilbúnir til að taka áhættuna af þessum lánveitingum, því það er alltaf áhætta af lánveitingum, þá gaf ríkið í. Það er nokkuð sem við erum að eiga við núna, að stjórnmálamenn gerðu það sem var gríðarlega vinsælt á þeim tíma en hlustuðu ekki nægjanlega vel á aðvörunarorð og það var heldur enginn salur fyrir því að hlusta á það þá.
Það má líka spyrja sig að því: Er einhver salur fyrir því að hlusta á aðvörunarorð þegar við erum að tala um fyrirætlanir þeirrar ríkisstjórnar sem nú er að fara af stað? Mér finnst ég vera að upplifa umræðuna með svipuðum hætti og hún var á þeim tíma því að það er einfaldlega ekki góð hugmynd, virðulegi forseti, að ríkið sé að nota fjármuni almennings, fjármuni skattgreiðenda, í áhætturekstur. Það fer alla jafna mjög illa, fór svo sannarlega illa hér, það er það sem við erum að eiga við og erum að reyna að lágmarka skaðann. En svo er það spurningin: Erum við hins vegar að endurtaka sömu mistökin á öðrum sviðum?