fjáraukalög 2025.
Virðulegi forseti. Það er auðvelt að segja frá því að það er alveg skýrt að starfsmenn fjármálaráðuneytisins fóru ekkert í felur með það að þessu hefði verið laumað í gegn í lögum um Bankasýsluna, ef ég man rétt. Ég er ekkert að fullyrða að það hafi verið gegn vilja ráðherra eða neitt slíkt. En burt séð frá því þá er það mín skoðun að svona mál hefði þurft að fá dýpri og betri umræðu. Þetta var auðvitað gert rétt fyrir kosningar þegar fólk er að hugsa um aðra hluti. Ég held að okkur hafi að vísu tekist furðanlega vel til við þær aðstæður, eins og stundum er þegar menn vinna hratt, og í sjálfu sér er enginn stór skaði orðinn enn þá. En það sem mér finnst að við þurfum að ræða er nokkuð sem ég kalla ábyrgðarleysisbyltinguna. Við erum búin að búa til fyrirkomulag — ég nefndi byggðasamlögin sem eru risafyrirtæki sem enginn ber ábyrgð á; það er enginn stjórnmálamaður sem getur tekið þá ábyrgð af mörgum ástæðum. Og við erum að stíga þessi skref af fullum þunga með ríkisfyrirtæki. Þegar maður skoðar þessa skýrslu þá er eitt af því sem er tilgreint alveg sérstaklega að þingið hafði enga aðkomu eða eftirlit, og ekki eftirlitsaðili heldur, með þessum samfélagsbanka. En það segir sig líka sjálft — af því að fólk, og þá er ég bara að tala um fólkið sem kýs okkur úti í þjóðfélaginu, hefur ekkert ofsalega mikið annað í hendinni en tjáningarfrelsið og svo atkvæði sitt — að fólk hlýtur að vilja vita hver ber ábyrgð á ríkisfyrirtækjunum. Hver ber ábyrgð á þeim núna? Hver skipar þau? Og ef stjórn einhvers ríkisfyrirtækis bregst, hver ber ábyrgð á því? Það er búið að koma þessu eins langt frá lýðræðinu og mögulegt er og það er í mínum huga kjarninn.