fjáraukalög 2025.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Ég verð að viðurkenna að ég er ekki alveg búinn að gera það upp við mig hvort mér þykir verra að starfsmenn fjármálaráðuneytisins hafi laumað þessu fram hjá ráðherranum sínum eða líti svo á að þeim hafi tekist að lauma þessu fram hjá þinginu. Mér finnst það jafnvel verra að nálgunin sé sú að farið sé í vegferð þar sem reynt sé að lauma raunverulegum breytingum í gegnum þingið þannig að lítið beri á og að dregið sé úr því að vekja athygli á slíkum málum. Ræðandi um það hver ber ábyrgð á ohf.-unum og stjórnarháttum þar þá blasir það við að það er hæstv. fjármálaráðherra sem skipar valnefndir og velur síðan úr þeim hópi sem valnefndirnar leggja til. Ég hef nú nefnt það hér og gagnrýnt í pontu að þau einu sem hafi lifað af sláturtíð stjórnarskipta núna séu fyrrverandi fulltrúar Viðreisnar. Það er vonandi tilviljun en þegar við horfum á opinberu hlutafélögin sem búið er að efna til stjórnarskipta í, eða aðalfundar og þar af leiðandi stjórnarskipta, frá því að ríkisstjórnin tók við, blasir það við. En þetta er algjört lykilatriði, þykir mér, í öllu því vafstri sem við hér í þinginu komum að með einum öðrum hætti, að við eigum tengingu við fyrirtæki í þær stjórnir og þar fram eftir götunum eins og fyrirkomulagið var um árabil. En nú er, eins og hv. þingmaður segir, búið að skera á þessa lýðræðislegu tengingu. Af svörum hæstv. fjármálaráðherra hér í fyrirspurnatíma í gær er ekki svo að skilja að ráðherrann telji sig bera neina ábyrgð á rekstri opinberra hlutafélaga; hann virðist ekki einu sinni telja sig í færum til að kalla eftir upplýsingum þaðan (Forseti hringir.) nema á aðalfundum á ársfresti. Við erum komin á einhvern ægilega vondan stað og hér í dag er auðvitað verið að fjalla um mál sem er af sama meiði, sagan byrjaði bara fyrir 20 árum síðan. (Forseti hringir.) En ég er hræddur um að við séum að búa til ný vandamál í dag.