fjáraukalög 2025.
Virðulegi forseti. Svo að ég haldi áfram og þakki hv. þingmanni fyrir andsvarið þá voru það, í þessu máli, náttúrlega mistök að ríkið væri í þessum rekstri. Þegar ekki var þörf þá átti að fara til baka og sannarlega átti þingið að ganga betur fram þannig að auðveldara væri að grípa inn í. En aðalatriðið er að það var ekki gripið inn í þegar þetta hófst. Nú getur vel verið, ef þingið hefði kosið stjórnina, úr því að fyrirtækið varð til, að enginn stjórnarmaður hefði kveikt á því eða vakið athygli þingsins eða þjóðarinnar — kannski, við munum aldrei komast að því. En það er sérstaklega tilgreint í rannsóknarskýrslunni að Alþingi hafi afsalað sér hlutverki í þessu og eftirlitslaust hélt þessi sjóður áfram að búa til skuldbindingar og skuldsetja almenning, skuldsetja skattgreiðendur. Og af því að hv. þingmaður spyr þá erum við núna með — og einhver kynni að segja að það væri bara lítið mál. En mér finnst það að vísu ekki lítið mál að risaríkisfyrirtæki séu að búa til einhver bænahús eða hvað það er fyrir einhverja aðila. Auðvitað er það ekki stórt fjárhagslegt mál en skiptir samt sem áður máli. Og við hvern á að tala, hver ber ábyrgð, hver getur gert eitthvað? Svo ertu með risafyrirtæki, stærstu fyrirtæki landsins, og við erum komin nákvæmlega á þennan stað að ef við getum ekki kannað þetta litla eða stóra mál, hvernig sem á það er litið, hvernig getum við þá litið á stærri málin ef það verða stór mistök þegar kemur að fjárhagslegum skuldbindingum? Og/eða ef menn eru ekki að fylgja eftir stefnu stjórnvalda af því að hugsunin á bak við þessi fyrirtæki er að vera fylgjandi stefnu stjórnvalda, segjum bara byggingu orkumannvirkja, byggingu flutningskerfis. Við hvern á að tala? Hvern á að skamma? Hverjum á að hrósa? Hér bendir hv. þingmaður á að hæstv. ráðherra, sem er náttúrlega með mestu tenginguna, (Forseti hringir.) getur bara talað við viðkomandi stjórnir á aðalfundum. Það er ansi lítil tenging.