fjáraukalög 2025.
Virðulegi forseti. Þetta er heldur stórt mál sem við fjöllum um hér og svo sem mikilvægt að horfa á það frá mörgum hliðum og gera eins og hv. þm. Guðlaugur Þór Þórðarson fór hérna yfir, það þarf líka að varast að þetta sé ekki að gerast á fleiri stöðum í kerfinu. Það mál sem við fjöllum hér um í dag er einmitt til þess að reyna að leysa vanda þannig að við séum ekki að varpa honum á komandi kynslóðir, það er verið að finna einhverja lausn hérna svo það sé ekki verið að gera það. Því erum við að sýna mikla ábyrgð með því að vinna að lausn á þessu máli. En auðvitað þurfum við að hafa í huga söguna og vil ég þakka hv. þingmanni vel fyrir að hafa farið svolítið yfir hana. Hún skiptir nefnilega máli. Þótt það eigi ekki alltaf að vera að horfa í baksýnisspegilinn er það mikilvægt í þessu af því að vítin verða að vera til þess að varast þau. Því held ég að sé mikilvægt að við tökum þessa umræðu hér, að við skulum við ekki fagna of snemma að hér sé komið eitthvert samkomulag sem er hagkvæmara fyrir ríkissjóð. Ég held að þetta mál verði aldrei hagkvæmt fyrir ríkissjóð, aldrei. Þetta er bara eitt stórt klúður og sorgarsaga.
Ég held að það sé rétt að staldra við núna og horfa yfir kerfið í heild sinni eins og ég heyrði að hv. þm. Guðlaugur Þór Þórðarson var að velta fyrir sér. Erum við með einhverjar svona tímasprengjur á fleiri stöðum í kerfinu? Er einhvers staðar komin sprengja sem getur sprungið núna eða eftir tíu ár? Þið sjáið það að núna erum við að takast á við þetta hér, hvað eigum við að segja, um 20–25 árum eftir að vandamálið skapaðist. Erum við að byrja að hlaða í svona sprengju einhvers staðar í kerfinu? Það þarf bara að nýta það tækifæri að við séum að fjalla um þetta hér í þinginu núna, þetta fer inn í hv. fjárlaganefnd og þau velta því svolítið upp hvort við séum einhvers staðar á fleiri stöðum að búa til svona fleiri sprengjur. Eru þær nú þegar og hvað getum við gert til þess að aftengja sprengjurnar og koma í veg fyrir að þær verði til? Ég held að það sé gríðarlega mikilvægt og þá erum við einnig alltaf að tala um það fyrir komandi kynslóðir þannig að við séum ekki að skapa þeim kynslóðum stór og óyfirstíganleg vandamál í efnahagsrekstri þjóðfélagsins og rekstri ríkissjóðs.
Ég vil líka nefna í þessu máli að ég get alveg tekið undir að það er jákvætt að það hefur náðst samkomulag. Það var mikilvægt að sé komin einhver lausn á þessu máli, að við séum ekki að ýta þessu máli á undan okkur, við vitum alltaf af þessu og þetta verði einhver snjóhengja og að við ætlum að láta einhverja aðra leysa það seinna af því að sjóðurinn er með einhverja greiðslugetu til 2034 eða hvað það var. Það er bara flott að við náðum samkomulagi en ég bið hv. nefnd samt að fara vel yfir það hvort þetta sé eins hagkvæmt samkomulag fyrir skattgreiðendur og hægt er. Er þetta hagkvæmasta leiðin? Eitthvað segir manni að það hversu ánægðir lífeyrissjóðirnir eru með þetta samkomulag, hversu þeir ganga hratt að því, að mögulega hefði verið að mögulega ná aðeins betra samkomulagi. Oftast er það þannig þegar tveir deila að bestu samningarnir eru þegar báðir eru fúlir. Ég held að við þurfum aðeins að kanna það í þessu. Ég þekki samt ekki hversu langt við erum komin inn í þetta samkomulag, hvort við getum eitthvað breytt til um það.
En ég held að þetta kenni okkur það líka, eins og hefur margoft komið fram og er mikilvægt að læra af þessu, að samfélagsbankar eiga ekki að vera til. Þeir eiga bara alls ekki að vera til og það þarf að fara varlega. Núverandi hæstv. ríkisstjórn er svo dugleg að gefa öllu ný nöfn þannig að við þurfum að hafa það í huga þegar við erum að byggja hér upp, eins og mér heyrist nú vera einhvern veginn stefna í hjá núverandi stjórnarflokkum — að vera að búa til alltaf og stækka félagslega íbúðakerfið. Þetta snýst allt um það að allt á að vera óhagnaðardrifið, sem ég held að sé ekki til. En það er alltaf talað um óhagnaðardrifið og leigustuðning. Nú er það nýjasta að það má ekki byggja ný hjúkrunarheimili, það var nú komið á fleygiferð hérna að fara að leigja hjúkrunarheimili af aðilum sem ættu lóð með skipulagi og allt, svo virðist það einhvern veginn hiksta núna því að það eigi að fara að gera leigusamning við óhagnaðardrifið húsnæði sem sveitarfélögin skaffa lóðina undir og eitthvað svona. Félagsbústaðir eru einhvern veginn allt einu orðnir peningamaskína Reykjavíkurborgar þegar búið er að mjólka Orkuveituna. Við þurfum að passa okkur á því að svona stefna fari ekki að baka ríkinu einhvern annan Íbúðalánasjóð. Við þurfum að vera mjög vakandi yfir því og við þurfum bara að tryggja það hér að séreignarstefnan — að fólk geti eignast sitt eigið húsnæði á sem hagkvæmustum kjörum, frá viðskiptabönkunum eða einhverjum öðrum sem vilja lána fjármagn, hér séu rekstrarskilyrði þeirra sem hagkvæmust þannig að það sé hægt að kaupa húsnæði á sem hagkvæmastan hátt. Það gerum við ekki síst með því að gera grunninnviðinn, lóðirnar, ódýrari, hætta að hafa lóðaskort og selja lóðirnar dýrum dómum og hafa þær sem einhver verðbréfaviðskipti. Það er að hækka verðbólguna sem hækkaði nú síðast í dag. Við þurfum að hafa þetta svolítið mikið í huga í þessu öllu saman.
Það eru svo margir angar sem maður fer að hugsa um þegar maður fær þetta mál hérna. Þetta er bara gríðarlega stórt mál og svo miklir peningar sem við fáum hér og þá fer maður að hafa áhyggjur vítt og breitt. Þetta sýnir líka mikilvægi þess að draga verulega úr áhættu ríkissjóðs. Það getum við gert t.d. með að selja eignarhlut okkar í fjármálastofnunum sem ég held að við eigum ekki að eiga í, þó að við getum átt ráðandi hlut í einum banka. Ég held að það sé mikilvægt því að þó að bankarnir á Íslandi séu ekki stórir á alþjóða- eða evrópska vísu þá gerðist það í bankahruninu að það voru mikilvægar stofnanir eins og tryggingafélög sem leit út fyrir að yrðu einungis í erlendri eigu. Við slík áföll þá held ég að sé rétt að við eigum kannski ráðandi hlut í einum viðskiptabanka en annars eigum við að selja hlut í Landsbankanum, selja allan Íslandsbanka og gera það sem fyrst.
En það er líka á fleiri stöðum sem við getum dregið úr áhættunni, eins og með félag sem hefur verið mikið í umræðunni af ýmsum ástæðum undanfarna daga, vikur og misseri sem er Isavia. Þar erum við með gríðarlega fjárbindingu ríkissjóðs, mjög miklar fjárfestingar, og það eru bara mjög mikilvægar fjárfestingar í því að byggja upp starfsemi Isavia ef við ætlum að halda áfram að stækka sem þjóðfélag eða efnahagskerfi. Ef við ætlum að keyra áfram hagvöxt á Íslandi þá verða bara uppbyggingar og framkvæmdir á Keflavíkurflugvelli að halda áfram. Það er bein tenging þar á milli. Það hefur svo sem gengið ágætlega en ríkissjóður í gegnum Covid — það geta alls kyns slík áföll komið. Það er mikill ófriður í heiminum í dag eins og fólk þekkir. Þá er þetta enn þá meiri áhætta að bera ein alla ábyrgðina og hafa allar þessa fjárbindingu Isavia og vera í mikilli skuldsetningu þar og uppbyggingu. Það er þannig lagað engin ávöxtun á þessu fjármagni af því að þetta fer allt beint í framkvæmdir, er ekki borgaður út arður. Því held ég að það sé mjög mikilvægt að við seljum stóran hlut í Isavia og drögum þannig úr áhættunni en gerum líka það sem félagið kallar eftir. Félagið sjálft er að kalla eftir auknu hlutafé sem þarf þá að koma frá eigandanum. Það þarf að kalla eftir auknu hlutafé til þess að geta haldið þessum mikilvægu framkvæmdum áfram og félagið hefur líka sagt: Við þurfum að fá fagfjárfesta inn. Það hefur ekki verið byggð svona stór bygging eða af þessum toga á Íslandi og verið í svo miklum framkvæmdum en það hefur verið gert úti um allan heim. Við þurfum að fá þá þekkingu, hvernig þetta er gert best.
Þetta tvennt er hægt að gera í einu með einu skrefi en það er að selja, það má alveg vera minni hluti, stóran hlut í Isavia og fá þannig fagfjárfesta að borðinu sem koma með þekkingu á uppbyggingunni en koma þá um leið með aukið hlutafé til að geta haldið þessum mikilvægu framkvæmdum áfram og þá fáum við í bónus að draga úr áhættu ríkissjóðs af þessum rekstri og eign. Ég held að þetta sé gríðarlega mikilvægt, að við látum þetta mál sem við fjöllum hérna um okkur að kenningu verða og fara svolítið yfir þessa hluti, markvisst draga úr áhættu ríkisins, passa að við séum ekki að búa til nýja og vera svolítið meðvituð um það hvað er að gerast í ríkisrekstrinum hvað það varðar. Þá skiptir það vissulega mjög miklu máli sem hv. þm. Guðlaugur Þór Þórðarson fór yfir, hver ber raunverulega ábyrgðina, að það sé ekki valið, með fullri virðingu fyrir fólkinu, bara fólk úti í bæ sem enginn kaus og þarf ekki að bera ábyrgð gagnvart neinum, að það sé valið hér til þess að taka ákvarðanir og fara með stjórnun fyrirtækja og annað slíkt án þess að það sé einhver raunveruleg ábyrgð. Þetta höfum við séð í gegnum þetta með bankana af því að stjórnmálamennirnir máttu ekki koma nálægt þessu eða af því að þeir voru hættulegir þá þurfti að búa til Bankasýsluna sem átti svo að velja hlutlausa stjórn inn í bankana en svo um leið það gerðist eitthvað í bönkunum var náttúrlega stjórnmálamönnunum kennt um það og enginn annar bar ábyrgð. Annaðhvort eiga stjórnmálamennirnir að bera ábyrgð og ráðherrar þurfa að þora að vera ráðherrar eða þá bara að við þurfum að fara að láta kjósa í stjórnir þessara fyrirtækja eða stofnana bara meðal almennings. Einhver þarf að bera ábyrgðina og einhvern veginn þarf þetta að vera af því að þeir fjármunir eða það fyrirtæki sem er ekki með skýra ábyrgð — það gæti leitt til þess að það verði ekki farið í alveg jafn gætilega eins og þyrfti.
Ég hlakka bara til að fylgjast með því hvernig hv. fjárlaganefnd tekur þetta mál til umfjöllunar og hvað kemur út úr þeirri vinnu og vona bara að við náum hér í sameiningu sem farsælastri lausn fyrir skattgreiðendur og þjóðarbúið.
Það er kannski svolítið skrýtið í þessu máli að þeir sem við eigum að gæta hér, skattgreiðendur og þegnar þessa lands, eru nú einmitt þeir sem eru á hinum endanum í þessu máli líka í gegnum lífeyrissjóðina þar sem lífeyrissjóðurinn þeirra er, þannig að þetta mál fer svolítið í hringi, hvorum megin ætlarðu að hafa — ætlar borgarinn að fá hagnaðinn sinn út úr þessu? Ég held að það sé mikilvægara að hann sé hérna af því að það nær til fleiri þegna landsins og frekar til komandi kynslóða. Ég held að það skipti miklu máli og hvet hv. fjárlaganefnd til góðra verka í þessu máli.