fjáraukalög 2025.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Vilhjálmi Árnasyni fyrir ræðuna sem er, og margar ræður hafa verið í þá veru, varnaðarorð gagnvart þeim áföllum sem við erum að vinda ofan af með þessu frumvarpi, ef ásættanleg lausn verður raunin, en líka varnaðarorð gagnvart því að búa til ný slík mál.
Mig langar að spyrja, kannski sérstaklega í ljósi þess að hv. þingmaður kom inn á umfang málsins sem hér er undir — ég er nú ekki með frumvarpið með mér en mig minnir að það séu 510 milljarðar, höfuðstólsupphæð skuldabréfsins sem á að gefa út í tengslum við þetta. Nú hafa verið ótal mörg mál og ýmiss konar sem snúa að stuðningi við Grindvíkinga eftir að jarðhræringar hófust þar. Hvað er það mál sem hér er verið að leiða í jörðu margfalt að umfangi með tilliti til þess sem hefur verið gert hvað varðar málefni Grindavíkur frá því að jarðhræringar hófust þar á svæðinu, svona fljótt á litið? Bara svona til þess að setja það aðeins í samhengi hvað þetta er gríðarlega stórt vandamál sem verið er að eiga við hér með hliðsjón af því hversu alvarleg staðan er og hve mikil íhlutun hefur verið varðandi jarðhræringar á Reykjanesskaganum.