fjáraukalög 2025.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir aðra mjög góða spurningu. Ég hef bara verulegar áhyggjur af þeim breytingum sem hafa orðið og Isavia mun verða enn fjarlægara okkur sem erum þjóðkjörin og berum á endanum ábyrgðina á félaginu af því að það er ohf., þegar það er komin fagleg nefnd úti í bæ sem stýrir. Ég þekki það vel í gegnum árin, að þó að stjórn Isavia hafi verið pólitískt skipuð, verið þá á beina ábyrgð þeirra sem voru þjóðkjörnir og völdu í stjórn Isavia, þá hefur það oft verið mikið vandamál gagnvart ohf.-fyrirtækjunum varðandi þá sem setjast þar í stjórn, að segja að þeir séu lögbundnir til að ganga bara erinda og hugsa um hagsmuni félagsins eins og það væri hlutafélag. Því hafi hin pólitíska stefna einhvern veginn ekki náð inn í stjórnir þó að þær væru pólitískt skipaðar. Þar hefur kannski skort á skýrari eigendastefnu eigandans. Og af því að þetta hefur verið svona, þó að við höfum samt haft pólitískar tengingar inn og reynt að hafa áhrif og fengið upplýsingar og samtalið verið skýrara og annað slíkt, þá held ég að það mikilvægasta, ef við ætlum að gera þetta af einhverju viti, sé að fá fagfjárfestana inn og losa um ábyrgðina. Þá getum við líka treyst því að það sé einhver sem veitir visst aðhald með ríkinu inni í félaginu og gerir þetta af þessari faglegu þekkingu og reynslu sem þekkist út um allan heim.