fjáraukalög 2025.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Þórarni Inga Péturssyni fyrir andsvarið. Ég verð eiginlega að byrja á að segja að mikilvægi lífeyrissjóðakerfisins og lífeyrissjóðanna er óumdeilt. En að því sögðu þá — af því að hv. þingmaður spyr mig út í þau ónot sem ég lýsti hér gagnvart því að grundvallarbreyting hafi orðið á afstöðu lífeyrissjóðanna frá því að málið var sett af stað á liðnu kjörtímabili af þáverandi fjármálaráðherra, Bjarna Benediktssyni. Viðbrögðin voru gríðarlega mikil og afgerandi þegar þær hugmyndir voru settar fram, og þessi samráðssamningaþreifingavinna var sett af stað, og síðan var gjörbreytt afstaða þegar þessir samningar nást, sem eru grundvöllur þess máls sem við ræðum hér. Ég held að óhætt sé að segja að lýsingin hafi verið í þá veruna að lífeyrissjóðirnir og fulltrúar þeirra hafi talið sig vinna fullnaðarsigur í málaumleitunum sínum gagnvart ríkissjóði. Það er í því samhengi sem ég leyfi mér að spyrja og í rauninni óska eftir því að fjárlaganefnd taki að sér það verkefni að undirbyggja þessa ákvörðun betur fyrir okkur þingmenn en mér þykir gert í greinargerðinni. Það eru svona greiningar á mögulegum sviðsmyndum þó að mér þyki það leiðinlegt, en engu að síður bara þannig að við áttum okkur á: Heyrðu, hér er bara verið að leiða þetta mál í jörðu með leið sem er ásættanleg fyrir ríkissjóð, ásættanleg fyrir lífeyrissjóðina einhverra hluta vegna. Eins og ég kom inn á í ræðu minni þá eru smærri fjárfestarnir að því er virðist til að gera ósáttir með niðurstöðuna en þeir hafa ekkert um samþykki eða ekki-samþykki að segja, dálítið eins og sveitarfélögin sem nú finna sig fljótlega, ef fram heldur sem horfir, í lögþvinguðu lágmarksútsvari. (Forseti hringir.) Hnúturinn í maganum hefur ekki leyst síðan í gær, svo að ég svari spurningu (Forseti hringir.) hv. þingmanns beint, en ég vona að vinna fjárlaganefndar leysi þann hnút og geri þetta (Forseti hringir.) ásættanlegt í öllu tilliti.
(Forseti (BHar): Forseti minnir hv. þingmenn á ræðutímann.)