156. löggjafarþing — 32. fundur,  29. apr. 2025.

fjáraukalög 2025.

319. mál
[15:45]
Horfa

Þórarinn Ingi Pétursson (F) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir sitt svar. Ég finn það alveg að það er eftirvænting í loftinu hvað það varðar að fjárlaganefnd taki málið til vinnslu. En að því sögðu þá langar mig að velta upp við hv. þingmann í kjölfar þeirrar umræðu sem átti sér stað hér í gærkvöldi varðandi þau eignasöfn og þær eignir sem tilheyra ÍL-sjóði: Við fengum nokkuð þokkalega mynd á það í svari frá hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra í gær. Þar sáum við og fengum að heyra að sú tala sem um er rætt í þeim skuldabréfum sem ríkið er í sjálfu sér að semja um, að það er síðan ákveðin innstæða uppi í það, þ.e. ÍL-sjóður er ekki eignalaus og langt því frá. Það er mjög mikilvægt í þessari umræðu að halda því á lofti að sjóðurinn sem slíkur var með töluverðar eignir, við fórum sömuleiðis ágætlega yfir söguna hér í gær varðandi orsök og afleiðingu og allt sem því fylgdi. Mig langar að beina því til hv. þingmanns og spyrja hann út í þau eignasöfn því að ég veit að hv. þingmaður er talnaglöggur og fylgist mjög vel með, svo að þingheimur geti glöggvað sig enn frekar á því hvað þarna er um að ræða, þ.e. þau eignasöfn sem ÍL-sjóður hefur yfir að ráða og sömuleiðis það t.d. að ríkissjóður tók lán hjá ÍL-sjóði á sínum tíma í tengslum við Covid. Það væri áhugavert að fá sýn hv. þingmanns á þetta, hvernig hann sér þessi eignasöfn og hvað verður þegar upp verður staðið, þegar leiknum kemur einhvern tímann til með að ljúka. (Forseti hringir.) Það liggur alveg fyrir með útspili hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra að við sjáum til lands hvað það varðar.