fjáraukalög 2025.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Það verður nú að vera aðeins eftir minni, yfirferðin um undirliggjandi eignir Íbúðalánasjóðs. En ef ég man rétt þá eru þær einhvers staðar, hafa verið nefndar, rétt um 200 milljarðar, sem eru þá í mismunandi eignaflokkum. Ég gef mér að fyrir utan það sé krafa á ríkissjóð vegna lánsins sem þar var tekið út. En ég held að við þurfum að nálgast þetta út frá jafnræði kröfuhafa. Að mínu mati, að jafn takmarkaðri skoðun á málinu og maður getur glöggvað sig á í frumvarpinu, þá eru stærri og minni kröfuhafarnir meðhöndlaðir með ólíkum hætti þannig að smærri kröfuhafarnir svona kveinka sér undan og það er kannski það sem ég er sérstaklega að benda á að við þurfum að skoða. Það hvernig undirliggjandi eignum í núverandi eignasafni Íbúðalánasjóðs, sem eru umtalsverðar, er ráðstafað og skipt. Ég hef ekki beint skoðun á því, það er sérfræðinga að leysa það. Ég hef ekki beint skoðun á því að öðru leyti en því að að jafn vel athuguðu máli og ég hef haft tækifæri til enn sem komið er þá þurfi jafnræðið að vera svona lykilatriði til að horfa til. Af þeim viðbrögðum sem maður hefur lesið úr umsögnum í samráðsgátt og í fréttum og skilaboðum sem hafa borist þá sé það kannski sá þáttur sem helst hafi kannski ekki tekist að leiða í jörðu þannig að menn telji jafnræðis og sanngirni gætt í samanburði þessara mismunandi kröfuhafa og -flokka.