156. löggjafarþing — 32. fundur,  29. apr. 2025.

fjáraukalög 2025.

319. mál
[15:52]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka andsvarið. Í stuttu máli tek ég bara undir og deili þeim áhyggjum sem hv. þm. Guðlaugur Þór Þórðarson lýsir hér. Mér hefur þótt verklag undir stjórn þessarar ríkisstjórnar, sem kallar sig í lítillæti sínu verkstjórn, vera lítt til eftirbreytni á fyrstu metrunum. Mér sýnist meðferð mála í nefndum vera þannig vaxin að það er allrar gagnrýni vert með hvaða hætti nefndarformenn stýra sínum nefndum. Ég er sammála því sem hv. þingmaður dregur fram að það er eins og það sé sérstakt markmið að vera í einhvers lags akkorði að reyna að sópa gestum og umsagnaraðilum eins hratt í gegn og nokkur kostur er. Það er ekki líklegt til að bæta lagasetningu hér í þinginu og gegnumgangandi virðist þetta ágerast eftir því sem málin eru flóknari og snúnari við að eiga pólitískt.

Nú ber að hrósa hæstv. fjármálaráðherra, Daða Má Kristóferssyni. Þó að ég sjái hann ekki akkúrat í augnablikinu þá hefur hann verið hér obbann af umræðunni og það ber að þakka því að það er alls ekki staðan hjá ýmsum félögum hæstv. ráðherra í ríkisstjórninni. Þegar við tökum þetta saman — hvað ráðherrar virðast áhugalitlir, tregir í taumi jafnvel, gagnvart því að tala fyrir og verja mál sín og útskýra þau, og því hvernig mál eru hanteruð í nefndum núna; þar er reynt að koma þeim flóknustu eins hratt og nokkur kostur er í gegn, með takmörkuðum tíma fyrir umsagnaraðila sem koma fyrir nefndina, takmörkuðum tíma fyrir spurningar og ég leyfi mér nú að segja á köflum furðulegum trakteringum þeirra sem stýra fundum — þá ber (Forseti hringir.) þetta allt að sama brunni og málsmeðferðin er ekki þeirrar gerðar að það sé líklegt til að bæta lagasetningu eða draga úr villum sem við þurfum að leiðrétta síðar.