fjáraukalög 2025.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið og það er augljóst að upplifun hv. þingmanns er sú sama og mín. Almenna reglan er sú að þegar ráðherrar tala fyrir sínum málum þá sitja þeir á ráðherrabekknum, taka niður athugasemdir, taka þátt í umræðunni til að útskýra ef þeir telja að hv. þingmenn séu komnir í einhverja villu eða hreinlega bara takast á við þegar hv. þingmenn og hæstv. ráðherra eru ósammála, ég tala nú ekki um að alla jafna er reglan sú að hv. þingmenn úr viðkomandi nefnd sem um þetta fjalla, bæði meiri hluta og minni hluta, eru á vettvangi. Ég verð að viðurkenna að ég man ekki hvenær maður sá síðast hv. þingmann úr stjórnarliðinu hér í þingsalnum, þetta er svolítið eins og í páskaeggjaleitinni þegar hún byrjar þá bara sér maður ekki neitt hvar þau eru. Svo finnast nú eggin en ég veit ekki með hv. stjórnarliða. Þetta er alvörumál, virðulegi forseti, því að ein ástæða fyrir því að við erum að tala um hluti sem kostuðu skattgreiðendur mjög mikið var sú að eftirlitshlutverk þingsins brást. Sannarlega hefðu menn átt að standa sig betur þegar kom að lagasetningu og ræða það dýpra, þó var sú umræða svo sannarlega tekin og hún var tekin mun dýpra en menn alla jafna vilja gera núna með mál. Það er því mjög alvarlegt mál. Það er svolítið sérstakt af því að við erum nú að hamast við — af því að við trúum því að hæstv. ráðherra sé hér einhvers staðar, það er ekki sanngjarnt að skamma hann þegar hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra hefur alla jafna verið viðstaddur umræður um sín mál, en það er alveg nýtt að við þurfum sérstaklega að hrósa hæstv. ráðherrum (Forseti hringir.) fyrir að vera viðstaddir þegar verið er að ræða þeirra eigin mál. Svo auglýsi ég eftir hv. stjórnarliðum, það væri gaman að sjá einn slíkan, í það minnsta mynd af viðkomandi.